Kraftajötuninn og leikarinn Hafþór Júlíus Björnsson, oft kallaður Fjallið, birti á Instagram-síðu sinni myndband þar sem hann slær á létta strengi. Þar sést hann nota eiginkonu sína sem lóð fyrir bekkpressu á meðan teiknað er á hann nýtt tattú.
Eiginkonan er Kelsey Henson, en þau hafa verið saman síðan 2017. Hafþór er 2,05 metrar á hæð en Kelsey er 1,57 á hæð og hefur hæðarmunurinn iðulega vakið kátínu fylgjenda Hafþórs.
Við færsluna og myndbandið skrifar hann:
„69… 70,71, auðveld þyngd!! Þarna nota ég eiginkonuna sem lóð á meðan ég læt tattúvera mig!!“
„No rest for the wicked!“