Logi Geirsson, fyrrverandi atvinnumaður í handbolta og landsliðsmaður, er fráskilinn og kominn á markaðinn. Þetta staðfestir hann í samtali við DV, en þau Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir voru saman í tíu ár. Nú er hins vegar ástarloginn slokknaður. Logi var í mörg ár atvinnumaður í handbolta og starfar í dag sem einkaþjálfari. Ingibjörg lék körfubolta í mörg ár suður með sjó og það með frábærum árangri. Hún varð meðal annars Íslandsmeistari. Þau eiga saman tvö börn, soninn Vilberg og dótturina Júlíu.