fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Þóttist vera trans til að sleppa við skammir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 3. ágúst 2019 19:00

Ótrúlegt mál Hvað gekk Carissu til? Mynd: Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upprennandi fyrirsæta, Carissa Pinkston, hefur heldur betur valdið usla í tískuheimum að undanförnu með uppátæki sem er svo furðulegt að það jaðrar við að vera lyginni líkast. Carissa nefnilega „kom út úr skápnum“ sem transkona fyrir stuttu, en virtist þó eingöngu gera það til að forðast skammir fyrir virkilega niðrandi færslur á samfélagsmiðlum um transfólk. Þegar fólk í kringum fyrirsætuna sagði hana ljúga á samfélagsmiðlum dró Carissa þetta allt til baka og játaði að hún hefði bara verið að þykjast vera trans svo fólk hætti að senda henni hatursfull skilaboð á samfélagsmiðlum.

Efnileg Carissa átti framtíðina fyrir sér í tískuheiminum. Mynd: Getty Images

„Að vera trans gerir þig ekki að konu“

Þetta byrjaði allt í maí síðastliðnum þegar að Carissa birti færslur á Facebook undir nafninu Rissa Danielle. Carissa birti tvær færslur þar sem hún viðhafði niðrandi orðræðu um transfólk.

„Að vera trans gerir þig ekki að konu. Það gerir þig bara trans,“ hljóðaði önnur færslan og í hinni skrifaði hún: „Svona vilja þau láta líta á sig. Líffræðilega eru til konur og karlar. Þetta er heimurinn árið 2019.“

Hótað lífláti

Í kjölfarið missti Carissa samning við umboðsskrifstofu sína, Elite Model Management, og var úthúðað á internetinu vegna færslnanna. Var hún sökuð um að vera transhatari. Þessi saga varð fyrst furðuleg þann 22. júlí síðastliðinn þegar Carissa „kom út úr skápnum“ í langri færslu á Instagram, sem hefur nú verið eytt.

„Ég var ekki tilbúin að koma út strax en í dag var ég rekin og hef fengið haturspósta og líflátshótanir þannig að ég er neydd til að segja sannleikann,“ skrifaði fyrirsætan, sem virtist eiga farsælan feril framundan. „Ég er trans. Ég var mjög ung þegar ég fór í kynleiðréttingarferli og ég hef lifað lífi mínu sem kona allar götur síðan. Það hefur verið erfitt að halda þessu leyndu en það sem ég sagði um transkonur endurspeglar mitt eigið óöryggi. Ég hef síðan þá komist að þeirri niðurstöðu að ég er kona … VIÐ ERUM ÞAÐ ALLAR!“ bætti hún við.

Lygin afhjúpuð

Á þessum tímapunkti hélt Carissa eflaust að hún hefði bjargað sér fyrir horn. Það hefði ekki getað verið fjær sannleikanum. Fólk sem hefur unnið með henni og þekkir hana vel þyrptist á samfélagsmiðla til að ljóstra upp sannleikanum um fyrirsætuna – að hún væri alls ekki transkona, heldur lygari. Fyrirsætan Aaron Philip, sem er trans, var ein af þeim. Henni var ekki skemmt.

„Ímyndið ykkur að vera fyrirsæta sem var afhjúpuð sem bullandi transhatari og lét út úr sér illkvittið transhatur, sem síðan LÝGUR UM AÐ VERA TRANS Á NETINU TIL AÐ REYNA AÐ BJARGA FERLINUM?“ skrifaði Aaron á Twitter. Önnur fyrirsæta, Aleece Wilson, hélt því líka fram á samfélagsmiðlum að Carissa væri að ljúga. Gott og vel, orð gegn orði.

Eyddi afsökunarbeiðninni

Hins vegar fór þessi flétta að verða afar dularfull og skrýtin nokkrum dögum síðar þegar Carissa játaði í annarri færslu á Instagram, sem hefur einnig verið eytt, að hún hefði verið að ljúga þegar hún sagðist vera trans. Sagðist hún eingöngu hafa sagst vera trans til að minnka áreitið eftir allt transhatrið sem hún lét út úr sér.

„Ég biðst afsökunar á öllum athugasemdum sem innihéldu transhatur. Ég varð óttaslegin og hélt að ef ég kæmi út sem trans að þá yrði allt betra fyrir mig en svo virðist sem ég hafi aðeins gert þetta verra. Ég biðst innilegrar afsökunar. Ég er aðeins tvítug og ég er mennsk. Ég geri mistök en ég neita að láta þau skilgreina mig. Ég vona að þið getið fyrirgefið mér og komist yfir þetta, því ég er svo mikið meira en þetta eina atvik og ég er ekki hugleysingi,“ skrifaði Carissa.

Í ljósi þess að Carissa birti þessa afsökunarbeiðni, væntanlega með vonir um að henni yrði fyrirgefið, er algjörlega óskiljanlegt af hverju hún er nú búin að eyða henni. Framtíð Carissu í fyrirsætubransanum er óljós, en ljóst er að hún hefur móðgað gífurlega marga með framferði sínu.

Á tískupallinum Hér þreytir Carissa frumraun sína fyrir Marc Jacobs. Mynd: Getty Images

HLIÐAREFNI

Hver er Carissa?

Carissa er tvítug fyrirsæta sem hefur setið fyrir fyrir tískumerki á borð við Marc Jacobs, Savage x Fenty og Prabal Gurung. Hún þreytti frumraun sína á tískupöllunum vorið 2018 á tískuvikunni í New York fyrir tískurisann Marc Jacobs. Þá er hún einnig ein af brautryðjendum í tískuheiminum þegar kemur að því að fagna fegurð frekna, en ljós húð hennar og freknumergð gerði það að verkum að hún átti erfitt uppdráttar í æsku. Carissa vakti mikla athygli á Grammy-verðlaunahátíðinni í ár þegar hún steig á svið með söngkonunni Rihönnu ásamt fyrrnefndri Aleece Wilson, sem einnig er afar freknótt.

Með Rihönnu Hér eru þær Stella Duval, Carissa Pinkston, Rihanna, India Graham og Taylor Gosling við afhjúpun nærfatalínu Rihönnu. Mynd: Getty Images
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki