Nú er komið á hreint hverjir sjá um næsta áramótaskaup, en yngstur í þeim hópi er uppistandarinn Jakob Birgisson, sem gengur iðulega undir nafninu Meistari Jakob. Það má með sanni segja að Jakob fari allt aðra leið en foreldrar hans á atvinnumarkaðnum, en móðir hans er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, sem sat á þingi fyrir Samfylkinguna á árunum 2009 til 2016. Þá er faðir hans Birgir Hermannsson, doktor í stjórnmálafræði, en hann starfaði um tíma sem aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar þegar hann gegndi embætti umhverfisráðherra á tíunda áratug síðustu aldar.