Eurovision-stjarnan Hera Björk Þórhallsdóttir er að selja íbúðina sína við Nóatún. Hera Björk er vinsæl söngkona og fasteignasali.
Íbúðin stendur í húsi sem var byggt árið 1957 og er 79,4 fermetrar. Þetta er hugguleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
Verðið sem er sett á íbúðina eru 42,9 milljónir. Hér getur þú skoðað íbúðina frekar.
Sjáðu myndirnar hér að neðan af heimili Heru og fjölskyldu.