Athafnakonan og fyrrverandi fegurðardrottningin Tanja Ýr fékk mjög ógnvekjandi skilaboð á Instagram á mánudaginn.
Hún deildi skilaboðunum í Instagram Story:
„Viðbjóðsleg glæpadýna. Svínar á fólki sem minna má sín. Vona að foreldrar þínir deyi báðir viðbjóðslegum kvalarfullum dauða. Svo þú.“
Tanja Ýr segir að hún fái mjög sjaldan leiðinleg skilaboð. „Og þegar ég fæ svoleiðis pæli ég yfirleitt lítið í því! En sum eru einfaldlega of ljót til að deila ekki,“ segir Tanja Ýr.
„Skilaboðin voru ekki einu sinni af fake account. Heldur alvöru manneskju! Er í sjokki,“ segir Tanja Ýr.
Hún hins vegar birtir ekki nafn manneskjunnar sem sendi henni skilaboðin.
Tanja Ýr nýtur mikilla vinsælda á Instagram og er með 33 þúsund fylgjendur á miðlinum. Hún hefur ekki tjáð sig frekar um skilaboðin og segist vilja halda „mínum miðli eins jákvæðum og hægt er.“