Hildur Guðnadóttir er tilnefnd til Emmy-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Þetta var tilkynnt fyrir skömmu síðan en tónlistarkonan segir sjálf á samfélagsmiðlum að heiðurinn sé gríðarlegur. „Ég er orðlaus,“ segir hún.
This just in! What an honour! I’m blown away!https://t.co/ZhYzczc01U#theemmys #emmyawards #emmynominee #chernobyl #hbochernobyl pic.twitter.com/3kCFoCSX8e
— Hildur Gudnadottir (@hildurness) July 16, 2019
Sjá einnig: Hildur eyddi mörgum klukkutímum í kjarnorkuveri
Chernobyl eru framleiddir af HBO og fengu heilar nítján Emmy-tilnefningar. Þáttaröðin Game of Thrones setti þó met en lokaþáttaröðin hlýtur 32 tilnefningar til Emmy-verðlaunanna. Segja má að Chernobyl-þættirnir hafi hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda, ekki síður vegna tónlistarinnar. Hildur hefur vakið mikla athygli að undanförnu en á dögunum hlaut hún boð um að taka sæti í bandarísku kvikmyndaakademíunni.
Bandaríska kvikmyndaakademían er sú nefnd sem kýs um ár hvert hvaða einstaklingar munu hljóta Óskarsverðlaunin. Á meðal fleiri Íslendinga sem hafa hlotið boð í nefndina eru Atli Örvarsson tónskáld, Fríða Aradóttir förðunarfræðingur, Elísabet Ronaldsdóttir klippari, Heba Þórisdóttir og Jóhann Jóhannsson heitinn. Þau Jóhann og Hildur höfðu einmitt áður unnið náið saman áður en hann féll frá.
Þess má einnig geta að Hildur semur tónlistina fyrir kvikmyndina Joker, sem væntanleg er í október á þessu ári og bíða margir eftir þeirri mynd með mikilli eftirvæntingu.