Skemmtileg hreyfimynd (e. gif) sem tekið var upp í Reykjavíkurborg hefur vakið mikla athygli, en þar sést ung kona stíga á ísinn á tjörninni í Reykjavík.
Tilraun konunnar til að stíga á ísinn fer ekkert voðalega vel. Hún nefnilega endar ofan í tjörninni.
Hreyfimyndin var tekin upp í nóvember árið 2016, en það var birt í gær og hefur strax vakið mikla athygli. Þegar fréttin er skrifuð hefur verið horft á hreyfimyndina 611.400 sinnum.
Hreyfimyndin var birt á Reddit undir nafninu Checking the ice. Í athugasemdakerfinu fyrir neðan færsluna virðist fólk átta sig á því að myndbandið sé tekið í Reykjavík, þó sumir haldi að það sé frá Rússlandi.