Tónlistarmanninn og leikstjórann Ágúst Bent Sigbertsson þarf vart að kynna, en hann sló fyrst í gegn á Íslandi í hljómsveitinni XXX Rottweilerhundar upp úr aldamótunum síðustu. Undanfarin ár hefur hann einnig gert garðinn frægan í sjónvarpsheiminum og lék til að mynda í Ófærð og leikstýrði Steypustöðinni auk þess sem hann vann náið með Steinda Jr. þegar hann var með sína eigin grínþætti.
Ágúst er litli bróðir stjörnutálgarans Svövu Sigbertsdóttur sem hefur verið búsett í Bretlandi síðan árið 2004. Svava hefur lagt hart að sér síðustu ár til að koma þjálfunaraðferð sinni The Viking Method á framfæri. Hún gaf nýverið út sína fyrstu bók um aðferðina og þjálfar stórstjörnur á borð við söngkonuna Nicole Scherzinger og Amöndu Holden, dómara í hæfileikaþættinum Britain’s Got Talent.