fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Er þetta eftirsóttasti leikarinn í Hollywood í dag?

Fókus
Föstudaginn 21. júní 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að ferill kanadíska leikarans Keanu Reeves hafi verið á mikilli siglingu undanfarin misseri. Reeves, sem er 54 ára, var ein skærasta stjarnan í Hollywood á tíunda áratug liðinnar aldar en í kjölfarið hvarf hann allt að því úr sviðsljósinu.

En nú er Reeves heldur betur farinn að láta til sín taka og hefur hann til að mynda fengið mikið lof fyrir leik sinn í þríleiknum um John Wick.

Marvel, sem framleitt hefur hverja ofurhetjumyndina á fætur annarri undanfarin ár, hefur mikið reynt að fá Reeves til að leika í myndum fyrirtækisins. Þetta sagði Kevin Feige, forseti Marvel Studios, í viðtali við vefinn Comicbook.com á dögunum.

„Við tölum við hann fyrir hverja einustu mynd sem við gerum. Ég veit ekki hvenær eða hvort hann slæst í lið með Marvel Comics Universe,“ segir hann og bætir við að hann sé spenntur fyrir því að vinna með Reeves.

Eftir að viðtalið birtist fór orðrómur á kreik um að Reeves myndi leika í Marvel-myndinni The Eternals ásamt Angelinu Jolie.

Reeves er þó ekki eini stórleikarinn sem Marvel hefur verið að eltast við því Feige nefndi einnig að fyrirtækið hefði oft reynt að fá Jake Gyllenhaal um að taka að sér hlutverk í myndum Marvel. Gyllenhaal tók að lokum að sér hlutverk en hann fer með hlutverk Mysterio í myndinni Spider-Man: Far From Home sem kemur í kvikmyndahús þann 2. júlí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi