https://www.instagram.com/p/Bt3FFozgKRV/
Aldís útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og steig sin fyrstu skref á sviði sem Desdemóna hans Shakespears.
Síðan þá hefur hún leikið á sviði, í kvikmyndum og í sjónvarpi en nú leikur hún aðalhlutverkið í nýjum tölvuleik frá Myrkur Games, The Darken.
https://www.instagram.com/p/Btvkgp7AAgB/
https://www.instagram.com/p/BwpCOJ9gvDH/
Sjáðu
landið okkar allra
með mosamjúkan opinn faðminn
tekur okkur öllum eins og við erum
landið okkar flokkar ekki fólkSjáðu
við stiklum á hálum arfinum
kærleikurinn vex upp úr rauðu hafi hjartansÍ kvöld er stjörnurnar falla á spegilinn
og rökkurmjúk aldan ber þær að landi
skal ég tína upp þó ekki væri nema eina
til þess að minnast sumarkvölda norður í dumbshafiVið skulum drekka sólargeisla saman að norðan
og sáldra yfir hann blágrýtismylsnu úr esjunni
og fagna fjölmenningu hér í miðnætursólinniMúrar gera það sem múrar gera
loka þig inni
rammgerðastir eru þeir sem
reistir eru í höfðum mannaRífum þá niður og göngum inn í víðáttu frelsisins
og fögnum lífinuSjáðu
sífellt bætast við blóm í garðinn
undursamlega fögur
hér eru auð rúm sem bíða barna
og drauma þeirraJúníbjört nóttin mun þvo af þeim martröðina
og dögunin mun leiða þau inn í bjarta framtíðRegnboginn hefur blessað börnin
silfurtært er málið í munni þeirra
hlustum á orð þeirra því dag einn
munum við hin eldri ganga í spor þeirraÉg veit ekki alveg
hvað það þýðir
að vera Íslendingur
nema ég vakna dag hvern
með landið mitt á tungunniÞað dugar