Gerður Huld Arinbjarnardóttir eða Gerður í Blush, eins og hún er oftast kölluð, er ung og hörkudugleg athafnakona sem stofnaði fyrirtækið sitt Blush.is þegar hún var aðeins 21 árs gömul. Þar hefur hún til sölu hin ýmsu tæki til hjálpar ástarlífinu og hefur Gerður opnað umræðuna um kynlíf mikið hérlendis.
„Ég er að horfa á GOT. Var að byrja á fyrstu seríu því það virðast allir vera að horfa á það svo ég varð að komast að því hverju ég væri að missa af. Mér finnst þetta byrja vel en þó frekar mikið af upplýsingum sem maður þarf að meðtaka svo maður þarf að fylgjast vel með til að ná samhenginu og kynnast karakterunum.
Ég er líka að horfa á þætti sem heita The Act sem eru um Gypsy Rose sem myrti móður sína, þættirnir eru sannsögulegir og mjög átakanlegir að horfa á. Ég á það til að lifa mig aðeins of mikið inn í þættina svo ég tek bara einn og einn af þeim þegar ég er í stuði, en þættirnir eru alveg magnaðir og ótrúlegt að svona hlutir geti gerst í alvörunni.
Önnur sería sem ég var að klára núna heitir Imposters og hún er æðisleg. Þættirnir fjalla um konu sem giftist mönnum og lætur sig svo hverfa með peninga þeirra. Ég datt alveg inn í þá þætti, þeir eru svona aðeins léttari en hinir þættirnir, og auðveldara að horfa á marga í einu.“