Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, hefur vakið athygli fyrir hnyttni og hreinskilni, hvort sem er í daglega lífinu, á samfélagsmiðlum eða í predikunarstólnum.
Hildur Eir, sem fagnaði fertugsafmæli í fyrra, er komin með nýjan mann í líf sitt, en hún skildi á síðasta ári við eiginmann sinn til 18 ára.
Hinn heppni heitir Kristinn Hreinsson og er rekstrarfræðingur og framkvæmdastjóri Rafeyri. Parið geislar af gleði saman, enda annað ekki hægt þegar hamingjan er með í för.