Saga af upphafi sambanda getur verið falleg, fyndin eða jafnvel hvorugt. Við lærðum það í dag á Twitter. Atli Viðar setti inn færslu á Twitter og spurði fólk hvernig það hafi kynnst makanum.
Í einu tweeti: Hvernig kynntistu makanum?
— Atli Viðar (@atli_vidar) May 15, 2019
Viðbrögðin leyndu sér ekki og hafa sögurnar streymt inn. Mjög vinsælt er að hitta maka sinn á Tinder, en fjölmargir nefndu stefnumótaforritið sem upphafspunkt sambandsins. Fókus ákvað að taka saman nokkur af bestu tístunum, en hægt er að skoða allan þráðinn hér.
Á grískri eyju. Spurði hvort e-n vantaði far í sjálfboðaliðahópi á whatsapp. Pikkaði K upp eldsnemma næsta dag og næstu vikur hjálpuðum við flóttafólki úr bátum yfir í rútur. Erum nýflutt á Blönduós og á leiðinni þangað núna í rútu með fólki sem flúði en fær skjól hér. Smá meyr.
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) May 15, 2019
Amabadama og Úlfur Úlfur saman á Sjallanum á sunnudeginum um versló. Ég spurði hvort ég mætti taka með þeim viðlagið í Tarantúlur og svo spjölluðum við saman baksviðs restina af kvöldinu. Ætlum að gifta okkur í sumar ?
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) May 15, 2019
Ég breiddi yfir hana gardínu áður en ég fór. Nú eigum við barn sem að kúkaði í baðið í gær.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) May 16, 2019
Vorum saman í vinnuskólanum og sett tvö saman í að grafa holu. Þá sagði ég, og það voru fyrstu orðin okkar á milli: „Þú ert alveg furðulega lítið sveitt miðað við hvað þú ert feit.“
Ok, þetta var ekki ég heldur sagan af því hvernig hjón sem ég þekki kynntust og varð að koma hér.
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) May 15, 2019
Hún var litla systir herbergisfélaga míns á heimavist í menntaskóla. Það var dick move, en 22 árum og þremur börnum seinna held ég að hann sé búinn að fyrirgefa mér.
— Sveinn Birkir (@sveinnbirkir) May 16, 2019
Mötsuðum á Tinder, ákváðum deit, ég þurfti að beila af því ég var blind eftir laser. Heyrðumst ekkert meir þá. Ári síðar, fyrir tveimur árum (upp á dag!) addaði hann mér á Facebook og spurði hvort ég vildi enn koma á deit. Varð fljótlega blind af ást, eða, þið vitið.
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) May 15, 2019
Tinder
Fékk reyndar fyrst senda ábendingu frá vinkonu af Tinder, en hafnaði því þar sem ég var komin með Tinderóþol.
Mánuði seinna hafði ég steingleymt því og ábendingunni hennar og við mötsuðum sjálf og hittumst svo í bjór.
2 ár síðan, greinilega bara áttum að kynnast ☺️ pic.twitter.com/JxVlquM4WN— vaselín (@_elinasbjarnar) May 15, 2019
Hann spurði á tinder hvernig ég hefði getað tekið selfí með kengúru?
Þetta var selfie með kind.
Hann var með mynd af sér að spila á saxófón, svo ég hélt hann væri menningarlegur jazzisti
Hann svona rétt spilar, veit 0 um jazz
Barn á leiðinni í dag og allt byggt á blekkingum— Rakel ekki Rachel (@Rakelbjorg) May 15, 2019
Á skátamóti í Viðey. “Brutumst svo inn í sundlaug” á næsta skátamóti, löggan kom. Spjölluðum á msn. Byrjuðum saman 2 árum síðar. Búin að vera saman í 11 ár í ár.
— Gunnar Garðarsson (@GunnarHordur) May 15, 2019
Tinder. Opnunarlínan hans var „Þú varst að matcha við þinn stærsta aðdáanda í Útsvarinu #teamútsvar“
Viku síðar deit með kílói af nammi, náttfötum og horft á Útsvar. Hann flutti inn þá um kvöldið.— margrét erla maack (@mokkilitli) May 15, 2019
Hann sendi mér skilaboð á Tinder og svaraði svo sjálfum sér.
Hann: Hæ
Ég: Hæ
Hann: Ertu að djamma?
Hann: JáMér fannst þetta nógu fyndið til að nenna að svara honum. Nú fjórum og hálfu ári síðar gift með barn á leiðinni.
— Þórunn Jakobs (@torunnjakobs) May 15, 2019
2016: Eitt deit en bæði nýkomin úr samböndum og það var skrýtið.
2017: Hitti hann í ræktinni kl. 7 á mánudagsmorgni og BOOM!
Nú er öll fjölskyldan mín byrjuð í golfi.— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) May 16, 2019
fórum í sleik í kórpartíi sem busar en það entist ekki
fórum svo í sleik í kórpartíi í skotlandi fimm árum seinna og það entist— mannætuplanta (@MargretAdalh) May 15, 2019
Við löbbuðum saman yfir Melrakkasléttuna. Það eru 27km. Nægur tími til að kynnast.
— HaukurHomm.com (@haukurhomm) May 15, 2019
Hún busaði mig í Borgó 1998 (bitch). Svo urðum við vinir í gegnum leikfélagið. Byrjuðum saman á sveittu skólaballi á Broadway. Síðan eru liðin tæp 20 ár, tvö börn og köttur. Elskana! ❤️
— Sigursteinn Sigurðz (@gjafi_sigur) May 15, 2019
Fyrst á Píanóbarnum þar sem hún var að dansa við dàta. Síðar à Ölver þar sem ég var í hlébarða g-streng að taka Delilah með Tom Jones:
Hún hefur verið klettur minn síðan
— Maggi Peran (@maggiperan) May 15, 2019
Sama hér. Unnum saman, elduðum grátt silfur í marga mánuði þangað til hann fór að reyna við mig. Eitt kvöld á Dollý var ég áreitt og hann bjargaði mér frá einhverjum pabbastrákum, bauð mér í drykk og brosti svo sætt þegar hann spurði hvort hann mætti kyssa mig. Fimm ár síðan ⬇️⬇️ pic.twitter.com/6dEwStEEw2
— Silja Björk (@siljabjorkk) May 15, 2019
Unnum á sama vinnustað ca. 2003/2004. Fannst hún alltaf fáránlega heillandi og falleg manneskja. Fannst hún líka vera way out of my league.
Fórum svo í sleik á Vegamótum 2007. Ein stærsta stund lífs míns.
Nú eigum við tvö börn, þrjá ketti og hús.
Mæli með.
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) May 15, 2019
Tinder date. Smullum strax saman, eftir smá gúggl fann ég mynd af honum úr dagatali slökkviliðsmanna sem kveikti í mér ? Ástfangin sem aldrei fyrr og stefnum á að eyða ævinni saman
— Linda (@LKarlsdottir) May 16, 2019
Grrrrrrr ?? pic.twitter.com/V9YenKeMDu
— Linda (@LKarlsdottir) May 16, 2019
Hittumst fyrst á leiðtogafundinum 1986. Endurnýjuðum kynnin á Gauk á Stöng ári síðar þegar við fórum að rífast um Kýpurdeiluna.
— Steinunn Björnsd. (@AddaSteina) May 15, 2019
Þið sem eruð stanslaust að senda myndir af kynfærunum ykkar á stelpur. Takið eftir því að það er enginn sem kynnist makanum sínum þannig.
— Árni Torfason (@arnitorfa) May 16, 2019