Kolbrún Pálína Helgadóttir, verkefnastjóri markaðsdeildar Árvakurs, er búin að setja íbúð sína í Funalind 11 í Kópavogi á sölu.
Um er að ræða 112 fermetra íbúð sem sett er á tæpar 54 milljónir króna. Íbúðin er á annarri hæð í fjölbýlishúsi og verulega mikið endurnýjuð.
Íbúðin er búin þremur svefnherbergjum og einu baðherbergi og sést langar leiðir að þar býr annáluð smekkmanneskja.
Funalind er á frábærum stað í Kópavogi og stutt í alla þjónustu, svo sem leikskóla, skóla, verslanir og sundlaug.