Fjöllistakonan Salka Sól Eyfeld er klárlega einn af hæfileikaríkustu, núlifandi Íslendingunum. Hún virðist geta allt – sungið, dansað, leikið og spilað á fleiri hljóðfæri en hægt er að nefna.
Eitt af nýjustu verkefnum hennar er að talsetja teiknimyndina Undragarðurinn, sem frumsýnd verður á næstunni og heitir á frummálinu Wonder Park. Sölku var brugðið þegar hún komst að því hvaða hlutverki hún gegndi í myndinni.
„Fékk stórt hlutverk í talsetningu og var alveg viss um að ég myndi vera sæta aðalstelpan. Svo þegar ég mætti komst ég að því að ég væri svínið,“ tístir Salka á gamansömum nótum.
Fékk stórt hlutverk í talsetningu og var alveg viss um að ég myndi vera sæta aðalstelpan. Svo þegar ég mætti komst ég að því að ég væri svínið ? pic.twitter.com/ICvWyUoQvy
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) April 5, 2019
Fylgjendur hughreysta stjörnuna og segja hana sætt svín, en Salka fetar í fótspor einnar fallegustu konu heims, Milu Kunis, sem ljáir svíninu rödd sína í Wonder Park. Ekki leiðum að líkjast.