Flugfélagið WOW Air varð gjaldþrota fyrir stuttu og misstu mörg hundruð manns vinnuna. Nú hafa 70 fyrrverandi starfsmenn WOW tekið saman höndunum og ætla að vera með fatamarkað laugardaginn 13. apríl næstkomandi.
Fyrrverandi starfsfólk WOW mun selja alls konar fatnað og heimilisvörur.
Markaðurinn verður í salnum við hliðin á Bónus í Holtagörðum. Hér getur þú skoðað viðburð markaðsins á Facebook.