Lady Gaga og Christian Carino slitu trúlofun sinni fyrr á þessu ári, en nú segir heimildarmaður tímaritsins Us Weekly að Christian láti Lafðina ekki í friði.
„Hann hefur hundelt hana,“ segir ónefndi heimildarmaðurinn. „Hún sagði honum að hafa ekki samband við sig.“
Lady Gaga og Christian byrjuðu saman í febrúar árið 2017 og trúlofuðu sig um sumarið sama ár. Hins vegar fór sögur á kreik í febrúar á þessu ári að upp úr sambandinu hefði slitnað þegar að Lafðin mætti einsömul á Grammy-verðlaunin. Stuttu síðar voru sambandsslitin staðfest.
Annar heimildarmaður tímaritsins segir að sambandið hafi verið eitrað og að Lafðin njóti lífsins eftir sambandsslitin.