Rapparinn Krabba Mane frumsýndi myndband við lagið Rútína á YouTube í gær en honum til halds og trausts í laginu eru rappararnir Birgir Hákon og Herra Hnetusmjör.
Myndbandið er framleitt af Quasar Films og leikstýrt af Ingimari Elíassyni, en það má með sanni segja að það sé afar metnaðarfullt.
Það er fitnessdrottningin Margrét Edda Gnarr sem sér um búningana í myndbandinu, en hún leikur einnig lögfræðing á móti Vilhjálmi Vilhjálmssyni og gerir það með stæl.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan: