RÚV leitar nú að framleiðanda Áramótaskaupsins á þessu ári, en eins og flestir vita er þessi skemmtiþáttur vinsælasta sjónvarpsefni ársins á Íslandi.
„RÚV lítur á Skaupið sem mikilvægan endapunkt sjónvarpsársins og leggur áherslu á að fjölbreyttur hópur komi að þróun og framleiðslu efnisins á hverju ári,“ stendur í auglýsingu RÚV og kröfur næsta framleiðanda listaðar upp.
Heildræna sýn á verkefnið; á aðferð, innihald og nálgun við framleiðslu.
Ítarlega lýsingu á efnistökum og nálgun í handriti.
Útfærslu á umgjörð, heildarsvip, uppbyggingu eða sérstöku þema.
Upplýsingar um lykilstarfsmenn og/eða tillögur að þeim; leikstjóra, handritshöfunda og helstu leikara.
Gerð er krafa um framúrskarandi gæði og hugmyndaauðgi.
Gert er ráð fyrir að Skaupið verði 50-55 mínútur að lengd.
Innihald skal að fullu vera í samræmi við gildandi lög og reglur um efni sem sýnt er á RÚV.
RÚV gerir kröfu um að framleiðandi fari eftir leikarasamningum RÚV við FÍL við framleiðslu efnisins.
Farið verður fram á reglulegt samtal við dagskrárstjóra og aðkomu hans að lykilákvörðunum sem snerta framleiðsluna, þ.m.t. samþykkt handrits, starfsfólks og á endanlegu klippi.
Grófklipptri útgáfu Skaupsins skal skila eigi síðar en 16. desember. Fullkláraðri útgáfu til útsendingar skal skila eigi síðar en 27. desember.
Fram kemur í auglýsingunni að RÚV greiði framleiðanda 34 milljónir króna „til að standa straum af kostnaði við framleiðslu verksins en framleiðslusamningur milli aðila felur í sér nánari útfærslu og önnur atriði er varða framleiðslu og skyldur framleiðanda og seljanda.“
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2019.
https://www.youtube.com/watch?v=U5n8xhcxuBE