Jón Gnarr skrifaði færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann segist fagna tilkomu nýrra lyfja við mígreni. Tilefnið var Instagram-færsla leikkonunnar Maríu Birtu, þar sem talað var um ágæti CBD-olíu sem lækningu við mígreni, en olían er unnin úr kannabisplöntunni. DV fjallaði um málið í gær.
Mígreni hefur verið vandamál hjá Jóni alveg frá barnsaldri en hann lýsir því hvernig sjúkdómurinn hefur birst hjá honum. „Svæsnustu köstin lýsa sér alveg eins og heilablóðfall, ég get ekki talað, skil ekki það sem sagt er við mig og þekki hvorki fólk né staði. Ég hef líka misst mátt og lamast.“
Jón hefur prófað fjölda lyfja við sjúkdómnum og nefnir Morfín sem hafði engin áhrif og lyfjakokteil þar sem „aðaldópið“ var Stesolid sem að svæfði hann bara. Jón segir þó að lyfið Imigran hafi reynst honum vel, en með því takist honum að afstýra köstunum.
„Mígreni er hræðilegur sjúkdómur sem því miður er ekki mikið vitað um,“ segir Jón og bendir á að sjúkdómurinn sé ólíkur hjá hverjum og einum og því virki mismunandi lækningar fyrir mismunandi einstaklinga. Jón fagnar því að fólk geti notast við CBD-olíu jafnvel þó að hún sé unnin úr kannabisplöntunni.