Barnamenningarhátíð í Kópavogi heppnaðist vel en hún fór fram dagana 8.-13. apríl. Hópar af leik- og grunnskólakrökkum sóttu dagskrá í Menningarhúsum Kópavogs alla vikuna. Þar var boðið upp á smiðjur, tónleika, jóga og margt annað.
Laugardaginn 13. apríl var síðan sérstök hátíðardagskrá. Boðið var upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla fjölskylduna í Salnum, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafni Kópavogs.