Það varð heldur betur heitt í kolunum innan Facebook-hópsins Beauty Tips á dögunum þegar að einn meðlimur hópsins setti í gagn skoðanakönnun. Spurningin var einföld: Hver er versta persónan í Friends?
Sjónvarpsþættirnir Friends slógu fyrst í gegn um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar og spönnuðu tíu þáttaraðir. Aðalpersónurnar í þáttunum voru ávallt þeir sömu, vinirnir Ross, Chandler, Joey, Phoebe, Monica og Rachel.
Þættirnir hafa lifað góðu lífi síðan og nú er deilt um það í Beauty Tips hvaða karakter sé síðstur.
Ross trónir á toppi skoðanakönnunarinnar með rúmlega níu hundruð atkvæði. Monica er með tæplega tvö hundruð atkvæði í öðru sæti og Phoebe í því þriðja með 149 atkvæði. Rachel er í fjórða sæti með 65 atkvæði og Joey með 33 atkvæði. Chandler er ekki valmöguleiki, enda margir sammála um að hann sé besti vinurinn.
Einhverjum finnst undarlegt að Ross sé svona langefstur í könnuninni.
„Ok skrýtið…Ross er eiginlega uppáhalds karakterinn minn,“ skrifar einn meðlimur og annar bætir við: „Mér finnst Ross skemmtilegur. Friends væri svo skrítið ef hann væri ekki.“ Þessi er svo einfaldlega í áfalli: „OMG ég er í sjokki. Ég ELSKA ROSS !!“
Hins vegar virðist Ross fara óstjórnlega í taugarnar á ansi mörgum.
„Hata Ross, hann er óþolandi,“ skrifar einn meðlimur. „Hata/elska hann samt en hann verður svo léttilega pirraður og æsir sig yfir öllu,“ skrifar annar.
Þá eru einhverjir á því að aukapersónurnar Emily, Janice, móðir Ross og Susan séu óþolandi. En hvað segja lesendur DV – Hver er mest óþolandi aðalpersónan í Friends? Taktu þátt í könnuninni hér fyrir neðan.