fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Ómar Ragnarsson búinn að missa níu kíló á sex mánuðum – Svona fór hann að því

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Mánudaginn 25. mars 2019 15:00

Ómar lætur ekki mótlæti stöðva sig.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson dáist að lífsstílsbreytingu söngvarans Bergþórs Pálssonar á bloggi sínu, en eins og margir vita hefur Bergþór náð að koma sér í afskaplega gott líkamlegt form síðasta árið.

Sjá einnig: Bergþór Pálsson hætti við að eldast: Sextugur í fallhlífarstökk – Ætlaði að hætta að syngja – „Það er aldrei of seint að lifa lífinu lifandi“

„Síðuhafi hefur lengi dáðst að Bergþóri Pálssyni, til dæmis fyrir átakið í líkamsrækt sem hann hefur farið í með glæsilegum árangri. Hins vegar geyma sögur margra dæmi um um vonbrigði vegna þess að eftir geysilegan árangur á undra stuttum tíma hefur oft komið lygilega mikið bakslag. 15 kílóa létting er í raun meiri létting, því að á sama tíma efldi Bergþór vöðvamassa sinn og vöðvar eru þyngri en fita,“ skrifar Ómar.

Grimmt svelti gengur ekki

Hann segist hafa verið orðinn of þungur seint á síðasta ári og því ákvað hann að setja sér markmið.

„Síðuhafi var orðinn 97 kíló í lok október, en samkvæmt formúlunni, sem flestir nota, er það við mörk þess að vera frekar feitlaginn / of þungur. Fordæmi Bergþórs, – en einnig bakslög hjá öðrum, hefur sannfært mig um að of grimmt svelti geti komið mönnum í koll á þann veg, að líkaminn bregðist við sveltinu með því að breyta efnaskiptum til mótvægis. Því skipti miklu að gera þetta hægt, en þó ævinlega í rétta átt, jafnvel þótt þyngdin standi í stað í nokkrar vikur. Síðuhafi hóf því kúr í lok október og setti sér það markmið að byrja á því að létta sig um tíu kíló, en þó ekki hraðar en 1,5 kíló á mánuði.“

Fjórar hæðir á 30 sekúndum

Þessi vegferð Ómars hefur þó ekki verið þrautalaus eins og hann segir frá í bloggfærslunni.

„Í janúarbyrjun settu axlarbrot og fleiri meiðsli í umferðarslysi strik í reikninginn næstu átta vikurnar, vegna hreyfingarleysis, og í kjölfarið nú í mars kom fyrsta flensan með snert af lungnabólgu í heil 20 ár og truflaði endurhæfinguna eftir slysið í hálfan mánuð,“ skrifar hann og bætir við að þrátt fyrir allt hafi hann náð prýðisgóðum árangri síðasta hálfa árið.

„Nú er ég orðinn nógu góður til að hlaupa að nýju upp fjórar hæðir á 30 sekúndum í líkamsrækt minni og hef létt mig um 9 kíló á tæpum sex mánuðum, þrátt fyrir áföllin, eða um 1,5 kíló á mánuði, – en 2,5 kíló á mánuði ef veikindakaflarnir eru dregnir frá.“

En hvernig fór Ómar að þessu?

„Átakið byggist ekki á neinu allsherjar banni, heldur á því neyta minna af öllu en áður, vigta mig tvisvar á hverjum degi og hafa strangt eftirlit og aðhald varðandi það sem borðað er. Samfelld vigtun miðar að því að þyngjast ekki meira en eitt kíló, ef svo ber undir, en þyngd flestra sveiflast í allt að eitt kíló í dagssveiflum, og það kemur fyrir að kíló bætist við í takmarkaðan tíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“