Alexandra Helga Ívarsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning Íslands, var gæsuð í gær af stórum hópi vinkvenna. Alexandra gengur að eiga sinn heittelskaða, knattspyrnukappann Gylfa Þór Sigurðsson, í sumar.
Dagurinn byrjaði í heimahúsi þar sem Alexandra skálaði við vinkonur sínar og hún puntuð fyrir daginn. Þá fékk hún einnig sérhannaða köku með mynd af sér síðan hún var krýnd Ungfrú Ísland árið 2008. Einnig voru vinkonurnar í bolum með sömu mynd á.
Fegurðarsamkeppnaþemað var raunar gegnum gangandi yfir daginn því eftir dögurð á Bryggjunni brugghúsi og rappstund í hljóðveri, þar sem Alexandra tók upp rapplag, var hún dressuð upp í síðkjól og fékk Ungfrú Ísland-borðann fræga.
Þá sendu vinkonur hennar hana einnig á nammibarinn í Hagkaupum í fullum skrúða þar sem hún vakti mikla athygli samkvæmt heimildum DV.
Síðan skemmti vinkonuhópurinn, sem inniheldur meðal annars áhrifavaldinn Birgittu Líf og fegurðardrottninguna Fanneyju Ingvars, sér fram eftir nóttu og tók grínistinn Hjálmar Örn meðal annars þátt í að gera daginn og kvöldið ógleymanlegt fyrir Alexöndru.