Sjónvarpsþáttaserían Ófærð hefur vakið gríðarlega lukku, en lokaþátturinn var sýndur síðustu helgi. Við viljum því vara þá, sem eiga eftir að horfa, við þessari grein þar sem hún gæti spillt einhverju fyrir áhorfendum.
Í þættinum Vikan með Gísla Marteini í gær var farið yfir sjö atriði sem fólk hefur eflaust ekki tekið eftir í seríu tvö af Ófærð, og kennir ýmissa grasa á listanum.
1. Þórhildur, dóttir Andra er vegan.
2. Andri fær upplýsingar um að Chevrolet sé stolið úr götunni hans Stefáns. Þegar bíllinn er sýndur er hann greinilega af tegundinni Ford.
3. Þegar að Hinrika slökkti eld í bíl Ásgeirs fór leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir svo nálægt eldinum að hún brenndi af sér aðra augabrúnina.
4. Unglingurinn Aron hlustar á Ham, Spilverk þjóðanna og Megas og er með plaköt af listamönnunum uppi á vegg í herberginu sínu.
5. Heimili Laufeyjar er í raun þrjú mismunandi hús. Húsið séð að utan frá er á Siglufirði, íbúðin sjálf er í Safamýri og kjallarinn er í Kjós.
6. Andri drekkur bara eitt glas af mjólk í seríu 2.
7. Hinrika leggur skákmann á hillu í lokaþætti í seríu 2. Á hillunni er rauður brunabíll, en það er sami bíll og Geirmundur hafði ætlað að gefa Magga, syni sínum, í seríu 1.