Nú styttist í frumsýningu seinustu þáttaraðarinnar af Game of Thrones og hefur sjónvarpsstöðin HBO verið að senda frá sér kynningarmyndir fyrir þáttaröðina.
Win or die #ForTheThrone.
Retweet this Tweet to see who remains in the realm. pic.twitter.com/6b5GYM5GWQ— Game of Thrones (@GameOfThrones) February 28, 2019
Ein myndin er af Jon Snow og hefur valdið aðdáendum þáttanna á Reddit miklum áhyggjum. Þeir benda nefnilega á það að kynningarmyndin af John Snow sé sláandi lík kynningarmyndinni af Ned Stark.
Telja einhverjir að þetta sé fyrirboði um það sem koma skal, en einhverjir ættu að minnast þess að Ned Stark dó í lok seríu 1. Hvort þetta sé fyrirboði eður ei verður að koma í ljós, en ljóst er að líkindin með myndunum eru sláandi.