Danski leikarinn Nikolaj Coster-Waldau, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Jamie Lannister í sjónvarpsseríunni Game of Thrones, er á Íslandi, eins og sést í sögu hans á Instagram. Þar sést hann spóka sig í miðbæ Reykjavíkur og knúsa ísbjörn.
Fetar hann í fótspor norska leikarans Kristofer Hivju sem heimsótti Íslands fyrir stuttu, en hann leikur Tormund í Game of Thrones.
Mikill spenningur ríkir fyrir lokaseríu Game of Thrones sem frumsýnd verður í apríl.