fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

GDRN veitir ungum stúlkum innblástur: „Látið ykkur dreyma risastórt!“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 14. mars 2019 08:50

GDRN

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mig langaði að hvetja allar ungar stelpur sem eru að horfa á þetta akkúrat núna: Látið ykkur dreyma, látið ykkur dreyma ristastórt. Þetta er mögulegt,“ sagði GDRN í einlægri ræðu eftir að hafa unnið enn önnur verðlaunin í gærkvöldi.

GDRN, eða Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir eins og hún heitir fullu nafni, hlaut fern verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum sem voru afhent í Eldborg í Hörpu í gærkvöldi.

Plata hennar, Hvað ef, var valin popplata ársins. Lagið Lætur mig, sem hún syngur með Flóna og samið með ra:tiovar var valið popplag ársins, og var hún kosin söngkona ársins í flokki popp, rokk og raf- og hipphopptónlistar. Að lokum fékk GDRN einnig verðlaun fyrir myndband ársins við lagið Lætur mig, en myndbandið er leikstýrt af Ágústi Elí Ásgeirssyni.

Ræða Guðrúnar Ýrar hefur vakið mikla athygli. Í ræðunni er Guðrún einlæg og hvetur ungar stúlkur að láta sig dreyma.

„Þegar ég var að byrja að gefa út tónlistina mína árið 2017, eða byrja að gera tónlist, þá var rosalega mikil breyting í samfélaginu. #MeToo byltingin komst af stað og ég hef verið að sjá ótrúlega grósku í tónlist hjá ungum stelpum í dag og mig langaði að hvetja allar ungar stelpur sem eru að horfa á þetta akkúrat núna, látið ykkur dreyma, látið ykkur dreyma risastórt og þetta er mögulegt. Takk fyrir okkur,“

sagði Guðrún Ýr í gærkvöldi.

Sjáðu allar tilfefningarnar hér að neðan. Vinningshafarnir eru feitletraðir og skáletraðir.

Tónlistarflytjandi ársins í djassi og blús – Einstaklingur
Kjartan Valdimarsson
Sunna Gunnlaugs
Magnús Trygvason Eliassen
Jóel Pálsson
Daníel Helgason

Tónlistarflytjandi ársins í djassi og blús – Hljómsveit eða hópur
Stórsveit Reykjavíkur
DÓH – Tríó
Ingi Bjarni Trio

Tónlistarflytjandi ársins í sígildri- og samtímatónlist – Einstaklingar
Sæunn Þorsteinsdóttir
Una Sveinbjarnardóttir
Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónlistarflytjandi ársins í sígildri og samtímatónlist – Hljómsveit eða hópur
Barokkbandið Brák
Kammersveitin Elja
Schola Cantorum
Nordic Affect
Strokkvartettinn Siggi

Tónlistarflytjandi ársins í poppi, rokki, raftónlist og rappi
Hatari
Auður – (Auðunn Lúthersson)
Vintage Caravan
Hórmónar
JóiPé & Króli

Tónlistarviðburður ársins í sígildri og samtímatónlist – Einstakir tónleikar
Budapest Festival Orchestra og Iván Fischer – Tónleikar í Eldborg, Hörpu
#bergmálsklefinn
Brothers
Víkingur Heiðar Ólafsson – útgáfutónleikar, Bach
Barokkbandið Brák – Spíralar Versala
Edda II: Líf guðanna – 23. mars / SÍ og Schola Cantorum
Íslendingasögur – Sinfónísk sagnaskemmtun – hátíðarviðburður fullveldisafmælisins 1. desember

Tónlistarviðburður ársins Sígild og samtímatónlist – Hátíðir
Myrkir músíkdagar
Óperudagar í Reykjavík
Reykholtshátíð

Tónlistarviðburður ársins í poppi og rokki
Aldrei fór ég suður
Fiskidagstónleikarnir á Dalvík
Háskar
Valdimar – Útgáfutónleikar
John Grant – Love is Magic

Tónistarviðbuður ársins í djassi og blús
Blúshátíð í Reykjavík
Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans
Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur
Jazzhátíð Reykjavíkur
Freyjujazz

Tónverk ársins í djassi og blús
Mitt bláa hjarta – Tónskáld: Karl Olgeirsson  / Textahöfundur: Karl Olgeirsson
Norðurljós – Tónskáld: Sigmar Þór Matthíasson
Ancestry – Tónskáld: Sunna Gunnlaugs
To catch a glimpse – Tónskáld: Scott McLemore
Bugða – Tónskáld: Agnar Már Magnússon

Tónverk ársins í sígildri og samtímatónlist
Farvegur – Þuríður Jónsdóttir
From My Green Karlstad – Finnur Karlsson
Loom – María Huld Markan Sigfúsdóttir
METACOSMOS – Anna Þorvalds
Silfurfljót – Áskell Másson
Spectra – Anna Þorvalds
Split thee, Soul, to Splendid Bits (attn.: no eternal life/light this time around) – Bára Gísladóttir

Lag/tónverk ársins í opnum flokki
Snorri Hallgrímsson – I know you´ll follow
Arnór Dan – Stone by stone
Gyða Valtýsdóttir – Moonchild
Veigar Margeirsson – Efi
JFDR – Gravity

Textahöfundur ársins
Auður – (Auðunn Lúthersson)
Jónas Sig
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Svavar Pétur – Prins Póló
Valdimar

Lagahöfundur ársins – Djass og blús
Karl Olgeirsson
Sunna Gunnlaugs
Scott McLemore
Agnar Már Magnússon
Sigmar Þór Matthíasson

Lagahöfundur ársins – Popp, rokk, rapp og raftónlist
Auður – Auðunn Lúthersson
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Svavar Pétur Eysteinsson
Jónas Sig
Valdimar

Söngkona ársins í poppi og rokki
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Margrét Rán
JFDR (Jófríður Ákadóttir)
Brynhildur Karlsdóttir
Bríet

Söngkona ársins í sígildri og samtímatónlist
Hallveig Rúnarsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir
Valgerður Guðnadóttir

Söngvari ársins í poppi og rokki
Auður
Valdimar Guðmundsson
John Grant
Króli (Kristinn Óli Haraldsson)
Svavar Knútur

Söngvari ársins í sígildri- og samtímatónlist
Benedikt Kristjánsson
Eyjólfur Eyjólfsson
Oddur Arnþór Jónsson

Upptökustjórn ársins
Jónas Sig. – Milda hjartað – Ómar Guðjónsson
Ylja – Dætur – Guðmundur Óskar Guðmundsson
Víkingur Heiðar Ólafsson – Johann Sebastian Bach – Christopher Tarnow
Auður – Afsakanir – Auðunn Lúthersson, Addi 800, Glenn Schick
John Grant – Love Is Magic – : Ben Edwards
Valdimar – Sitt sýnist hverjum – Pétur Ben (upptökustjóri) Magnús Öder (hljóðblöndun) Alan Douches (hljómjöfnun)

Bjartasta vonin í sígildri og samtímatónlist
Björk Níelsdóttir tónskáld, hljóðfæraleikari og söngkona.

Bjartasta vonin í djassi og blús
Gítarleikarinn og tónskáldið Daníel Helgason.

Bjartasta vonin í poppi, rokki, raftónlist, rappi og hiphopi
Bagdad Brothers
Bríet
ClubDub
Matthildur
Une Misère

Heiðursverðlaun
Tónskáldið Jón Ásgeirsson

Tónlistarmyndband ársins
Auður – Afsakanir – Leikstjóri: Erlendur Sveinsson
Between mountains – Into the Dark – Leikstjóri: Haukur Björgvinsson
GDRN – Lætur mig ft. Floni & ra:tio – Leikstjóri: Ágúst Elí
Herra hnetusmjör – Fóbó – Leikstjóri: Eiður Birgisson
Hugar – Saga – Leikstjóri: Máni Sigfússon
Ólafur Arnalds – re:member – Leikstjóri: Thora Hilmar
Special-K – Date Me I’m Boerd – Leikstjóri: Kristín Helga Ríkharðsdóttir
Teitur Magnússon ásamt Mr. Silla – Orna – Leikstjóri: Logi Hilmarsson

Lag ársins – Popp
Auður – Heimskur og breyskur
Prins Póló – Líf ertu að grínast
Vök – Autopilot
GDRN ft. Floni & ra:tio – Lætur mig
Bríet – In Too Deep

Lag ársins – Rokk
Benny Crespo’s Gang – Another Little Storm
Valdimar – Stimpla mig út
Une Misere – Wounds
Hórmónar – Kynsvelt
Hatari – Spillingardans

Lag ársins í rappi og hiphoppi
JóiPé & Króli – Í átt að tunglinu
Logi Pedro – Dúfan mín
Birnir – Út í geim
Herra Hnetusmjör & Ingi Bauer – Upp til hópa
Cyber – Hold

Plata ársins – Raftónlist
Auður – Afsakanir
aYia-aYia
Kælan Mikla – Nótt eftir nótt
Andi – Allt í Einu
Hermigervill – II

Plata ársins – Rapp og hip hop
JóiPé & Króli – Afsakið hlé
Elli Grill – Pottþétt Elli Grill
Birnir – Matador
Herra Hnetusmjör – KBE kynnir: Hetjan úr hverfinu
Cyber – Bizness

Plata ársins – Rokk
Valdimar – Sitt sýnist hverjum
Benny Crespo’s gang – Minor Mistakes
Vintage Caravan – Gateways
Dr. Spock – Leður
Hórmónar – Nananabúbú

Plata ársins í sígildri og samtímatónlist
Anna Þorvaldsdóttir – AEQUA
Jóhann Jóhannsson – Englabörn & Variations
Þráinn Hjálmarsson – Influence of buildings on musical tone
Víkingur Heiðar Ólafsson – Johann Sebastian Bach
Söngvar Jórunnar Viðar – Jórunn Viðar – Söngvar
Nordic Affect – He(a)r

Plata árins í Þjóðlagatónlist
Ylja – Dætur
Ásgeir Ásgeirsson – Travelling through cultures
Umbra – Sólhvörf
Umbra – Úr myrkrinu
Teitur Magnússon – Orna

Plata ársins í opnum flokki
Sunna Friðjóns – Enclose
Maximús Músíkús og Sinfóníuhljómsveit Íslands – Maximús fer á fjöll
Gyða Valtýsdóttir – Evolution
Hekla – Á
Kjass – Rætur

Tónlist úr kvikmynd, sjónvarpsþætti eða leikverki
Atli Örvarsson – Lói þú flýgur aldrei einn
Davíð Þór Jónsson – Kona fer í stríð
Gyða Valtýsdóttir – Mihkel
Veigar Margeirsson – Efi, dæmisaga
Jóhann Jóhannsson – Mandy

Plata ársins í djassi og blús
Karl Olgeirsson – Mitt bláa hjarta
DÓH Tríó – DÓH
Sunna Gunnlaugs – Ancestry
Agnar Már – Hending
Scott McLemore – The Multiverse

Plata ársins – Popp
Prins Póló – Þriðja kryddið
John Grant – Love Is Magic
Jónas Sig – Milda Hjartað
Svavar Knútur – Ahoy! Side A
GDRN- Hvað ef

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig