Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson er næsti gestur í spjallþættinum Með Loga næsta fimmtudagskvöld. Í þættinum fer Björgvin yfir ferilinn, en hann var lengi vel einn eftirsóttari söngvari landsins og mundaði hljóðnemann í sveitum á borð við Ævintýri, Brimkló og HLH-flokknum.
„Allir vissu hver ég var, hvar sem ég fór,“ segir Björgvin í meðfylgjandi stiklu og heldur áfram.
„Ég áttaði mig á því mjög fljótlega að ég get ekkert alltaf verið í þessari hljómsveit. Ég verð að geta verið bara ég sjálfur, einn.“
Ekki kemur fram um hvaða hljómsveit Björgvin talar en hann segist jafnframt enn vera taugaóstyrkur þegar hann stígur á svið.
„Ég er enn nervus þegar ég fer á svið. Svo þegar maður labbar á sviðið og byrjar þá bara…“