Fréttamannaparið á RÚV, Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson, hafa sett íbúðir sínar á sölu. Einar á íbúð í Stórakrika í Mosfellsbæ og Milla Ósk í Skálagerði í Reykjavík.
Parið hefur verið saman um nokkurn tíma og ástæðan fyrir sölunni líklega sú að þau ætla sér að kaupa eign saman og búa sér heimili saman.
Samkvæmt færslu á Facebook-síðu Einars er ástæðan sú að þau þurfi að stækka við sig á komandi misserum.