fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Daði og Árný eiga von á barni: „Bumbulína í skíðaferð“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Mánudaginn 18. febrúar 2019 10:30

Daði og Árný

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson og eiginkona hans, Árný Fjóla Ásmundsdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Frá þessu segir Árný Fjóla á Instagram-síðu sinni.

„Bumbulína í skíðaferð í Austurríki. Er reyndar lítið á skíðum en það er samt rosa gaman,“ skrifar Árný Fjóla við mynd af sér með myndarlega bumbu, en hún er komin 33 vikur á leið.

https://www.instagram.com/p/BuBC-FFgGXu/

Hjónin gengu í það heilaga seint á síðasta ári, en hafa verið hálfgerð óskabörn þjóðarinnar síðan þau tóku þátt í Söngvakeppninni með lagið Hvað með það? árið 2017. Þau lentu í öðru sæti, lutu í lægra haldið fyrir Svölu Björgvinsdóttur og Paper, en eignuðust gríðarlega marga aðdáendur þrátt fyrir það.

Fókus óskar hjónunum innilega til hamingju!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki