fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Tónlistarfólkið sem leikur í Ófærð

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. febrúar 2019 10:00

Þessir tónlistarmenn leyna á sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú líður senn að leiðarlokum annarrar þáttaraðarinnar af Ófærð og spennan er farin að magnast. Rjóminn af helstu leikurum þjóðarinnar fer með burðarhlutverk í þáttunum en inni á milli eru óþekktir leikarar sem þó leika ekki síður veigamikil hlutverk. Á dögunum tók DV saman leikarabörnin í Ófærð en núna er komið að „óþekktu leikurunum“.

Þorgeir Tryggvason

Eitt mikilvægasta atriði sjónvarpsþáttaraðarinnar á sér stað strax á fyrstu mínútum fyrsta þáttar þegar bóndinn Gísli kveikir í sjálfum sér fyrir framan

 Alþingishúsið. Gísli er leikinn af Þorgeiri Tryggvasyni sem getið hefur sér gott orð sem leikskáld, Ljótur hálfviti og álitsgjafi varðandi allt sem tengist menningu og listum. Þegar Þorgeir, eða Toggi, er ekki að gera eitthvað sjóðheitt tengt listinni þá starfar hann sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Hvíta húsinu. DV hefur ekki upplýsingar um hvort Toggi muni halda áfram að spreyta sig á hvíta tjaldinu eða hvort ferill hans sé orðinn brunarústir einar.

Íris Hólm Jónsdóttir

Íris Hólm Jónsdóttir

Íris leikur veigamikið hlutverk hárgreiðslukonunnar Hönnu Stínu sem er ekki öll þar sem hún er séð. Íris hefur getið sér gott orð sem söngkona undanfarin ár. Hún kvað sér fyrst hljóðs í sjónvarpsþáttunum X-factor og í kjölfarið opnuðust henni margar dyr sem söngkona.

Í ár syngur hún bakraddir í lagi Ívars Daníels „Þú bætir mig“ í undankeppni Eurovison hérlendis. Á þeim vettvangi hefur Íris mikla reynslu en hún söng meðal annar bakrödd hjá Maríu Ólafs í Austurríki árið 2015.  Íris venti sínu kvæði í kross árið 2015 og fluttist til New York þar sem hún lærði leiklist við skólann Circle in the Square Theatre. Íslenskir sjónvarps- og kvikmyndaunnendur munu því eflaust sjá meira af Írisi í framtíðinni.

JóiPé og Króli

Búast má við því að æska landsins hafi hrópað upp yfir sig af hrifningu þegar rappararnir Jói Pé (Jóhannes Damian Patreksson) og Króli (Kristinn Óli Haraldsson) birtust skyndilega sem ofbeldisfullir unglingar í áttunda þætti þáttaraðarinnar.

Það hefði sennilega orðið raunin ef börn mættu horfa á Ófærð. Króli hafði sig mest í frammi í atriðinu enda er hann þrautreyndur leikari þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur meðal annars stigið á svið í verkunum Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur og Fjalla-Eyvindi og Höllu í Þjóðleikhúsinu. Þá lék hann í kvikmyndinni Bjarnfreðarson þegar hann var aðeins 10 ára gamall. JóiPé var síðan svalur í bakgrunni senunnar.

Jói Pé og Króli

Ágúst Bent Sigbertsson

Rapparinn og leikstjórinn Bent er vanur maður beggja vegna myndavélanna. Samkvæmt bestu vitund DV er þetta þó í fyrsta skipti sem hann er hvorki að rappa né grínast fyrir framan linsuna. Bent lætur ljós sitt skína í þriðju seríu þáttaraðarinnar sem vinnumaðurinn Elliði en hann veitir lögreglukonunni Hinriku upplýsingar sem reynast mikilvægar í lögreglurannsókninni.

Ágúst Bent Sigbertsson

Elva María Birgisdóttir

Elva María Jónsdóttir sló í gegn í Ísland got Talent árið 2014

Elva María fer með mun stærra hlutverk í annarri þáttaröðinni sem Þórhildur, dóttir rannsóknarlögreglumannsins Andra. Elva María lék einnig Þórhildi í fyrri þáttaröðinni en þá deildi hún hlutverkinu með annarri leikkonu. Elva María sló í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni Ísland got Talent árið 2014, þá aðeins ellefu ára gömul, en hún söng sig inn í úrslitaþáttinn. Þá hefur hún stigið á svið í ófáum leikritum og fór með stórt hlutverk í kvikmyndinni Grafir og bein um árið.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla