„Með því að mæla hreyfingu Stóra og Litla Magellansskýsins, sem eru 160 og 200 þúsund ljósár í burtu, getum við vigtað Vetrarbrautina. Hún vegur á við 1,5 billjónir sóla en þar af eru 4% stjörnur, 12% gas og 84% hulduefni,“ sagði Sævar en hann átti ábyggilega ekki von á því að fá þau viðbrögð sem hann fékk við tístinu.
Það var nefnilega enginn annar en leikarinn Rainn Wilson, sem oftast er þekktur fyrir hlutverk sitt sem Dwight í bandarísku útgáfunni af The Office, sem deildi tísti Sævars. Svo virðist þó vera sem Wilson sé lítið fyrir þennan fróðleik sem Sævar var að deila því það sem Rainn sagði var einfaldlega: „Whatever, dude.“ Sævar svaraði tísti Wilson og sagðist verða að sýna honum alvöru stjörnur næst þegar Wilson kemur til landsins en Wilson kom nýlega til Íslands.
Wilson er umhverfissinni líkt og Sævar en Wilson vinnur nú að ferðaþáttum sem fjalla um loftslagsmál víða um heiminn. Í ferð sinni til Íslands gerði Rainn sér ferð niður á Austurvöll. Þar ræddi hann við börn sem voru að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda í loftslagsmálum.
Ekki náðist í Sævar Helga við gerð fréttarinnar.
Whatever, dude https://t.co/See6r40iTc
— RainnWilson (@rainnwilson) December 6, 2019