fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Spurning ársins – hvað var eftirminnilegast?

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 29. desember 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðasta spurning ársins hlýtur óhjákvæmilega að vera: hvað staðið hefur upp úr á árinu sem er að líða. Þessi höfðu sitt um það að segja.

Mynd: Eyþór Árnason

Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari. „Það verður að vera fyrsta utanlandsferðin mín með foreldrum og systkinum til Riga í tilefni 70 ára afmælis mömmu.“

Valgeir Sigurjónsson flugmaður. „Það sem olli svona helstu fjaðrafoki á þessu ári var nú að mínu mati þegar fjölbleikt flugfélag lokaði dyrunum og óvissan tók við.“

Ívar Örn Sverrisson, leikari og framleiðandi. „Klárlega það að Grete Thunberg hristi upp í okkur. Við verðum að breyta því hvernig við hugsum um umhverfið og að það þurfi að hugsa fyrir komandi kynslóðum. Við viljum ekki lengur stranga foreldra sem leiðtoga heldur óeigingjarnt fólk með góða tilfinningagreind.“

Hildur Guðmundsdóttir. „Vikuferð til Delí á Indlandi í sumar var góð áminning um hve heppin við Íslendingar erum. Það er alltaf jafn magnað að komið sé verr fram við fólk en dýr. Annars var mitt persónulega ár dásamlegt. Samverustundir með fjölskyldunnni, fæðing lítillar bróðurdóttur, utanlandsferðir með vinum og almenn skemmtilegheit.“

Ísafold Salka Búadóttir. „Eftirminnilegast var þegar ég stakk mig á marglyttu í sjónum út í Noregi.“

Pétur Rúnar Heimisson, markaðsstjóri Borgarleikhússins. „Eftirminnilegast á árinu var að sjá dáðasta knattspyrnumann Garðabæjar hreinlega taka yfir sjónvarpsþáttinn „Allir geta dansað“. Þvílíkur dansari!“

Ólöf Helga Guðmundsdóttir lögmaður. „Brúðkaupsdagurinn minn er án efa eftirminnilegastur af þessu ári sem og ógleymanleg brúðkaupsferð í Karíbahafið sem fylgdi í kjölfarið.“

Aldís Pálsdóttir ljósmyndari. „Ég hætti í fastri vinnu og fór að huga að sjálfri mér. Svo átti ég líka gott sumarfrí með fjölskyldu minni. Nú tek ég bara fagnandi á móti þeim verkefnum sem berast til mín sem „freelance“ ljósmyndari.“

Alma Dögg Garðarsdóttir nemi. „Persónulega myndi ég segja fjölskyldufríið til Spánar sem varði í góða fjóra mánuði, en auðvitað var veðrið hér á Íslandi líka æðislegt og þá sérstaklega í sumar.“


Sævar Stormur Þórhallsson lífskúnstner. „Þegar ég fékk að klippa á mér hárið.“

Sigga Eyrún Friðriksdóttir söngkona. „Vá, svo margt! Ég eignaðist barn, gifti mig og lék líka í rugl skemmtilegri leiksýningu í Tjarnarbíói þar sem ég fann Dragdrottninguna mína.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina