fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Stórafmæli Fight Club – Margir íslenskir gagnrýnendur slátruðu myndinni: „Það er eins og Fincher hafi ætlað að fara út á ystu nöf og hrapað“

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 3. nóvember 2019 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbsins sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins. Sótsvarta kómedían Fight Club, frá hinum virta leikstjóra David Fincher, var frumsýnd á Íslandi þann 5. nóvember 1999 og fagnar því stórafmæli. Þá er vissulega tilefni til þess að þverbrjóta kjarnareglu klúbbsins sem hefur lengi brunnið á vörum fólks.

Fight Club skartar þeim Edward Norton, Brad Pitt og Helenu Bonham-Carter. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Chuck Palahniuk og segir sagan í grunninn frá skrifstofublók sem er komin í algjört þrot í lífsstíl sínum sem einkennist af hugsunarlausri og hömlulausri þátttöku í neysluþjóðfélaginu. Dag einn tekst honum að brjótast út úr þessu kæfandi lífsmynstri með aðstoð sápusölumannsins dularfulla, Tylders Durden. Saman stofna þeir slagsmálaklúbb þar sem menn komast í snertingu við sinn innri mann með því að berja hver annan í kartöflustöppu. Smám saman spretta fleiri slíkir klúbbar upp og fljótlega eru þeir orðnir aðalmennirnir í eins konar hryðjuverkasamtökum sem herja á lífshætti nútímamannsins.

Rassinn bestur

Myndin hlaut dræma aðsókn og voru gagnrýnendur annaðhvort á því að hér væri um að ræða meistaraverk eða hrokafulla þvælu. Til langs tíma litið er „költ“-staða myndarinnar ótvíræð og eru fáar myndir frá leikstjóranum Fincher sem hefur verið jafn oft vitnað í.

Íslenskir gagnrýnendur höfðu óhikað skiptar skoðanir. Við útgáfu myndarinnar skrifaði Hilmar Karlsson í DV að lítið væri gert til að réttlæta allt ofbeldið sem myndin sýnir hömlulaust. „Það er eins og Fincher hafi ætlað að fara út á ystu nöf og hrapað. Í raun má skipta Fight Club upp í þrjá leikþætti þar sem fyrsti þátturinn er frábær, annar þáttur slæmur og þriðji þátturinn og sá stysti, endirinn, er góður,“ segir í dómi Hilmars.

Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður var heldur ekki jákvæður í garð myndarinnar þegar hann fjallaði um hana í þættinum Ísland í bítið. Fáir voru jákvæðari í garð myndarinnar en bíórýnir sjónvarpsþáttarins Með hausverk um helgar, en hann gaf henni fullt hús stiga.

Hildur Loftsdóttir hjá Morgunblaðinu var einnig hæstánægð með myndina og sagði hana vera á meðal þeirra betri sem komu út árið 1999. „Fight Club er sérlega áhugaverð og skemmtilega úthugsuð mynd, flott tekin og töff. Ed Norton er besti leikari í heiminum og rassinn á Brad Pitt er líka bestur.“

Karlpungar í krísu

Við fyrstu sýn má gera ráð fyrir því að Fight Club sé hin dæmigerða „testósterónmynd,“ sem málar upp tilefnislaus slagsmál og stjórnleysi í jákvæðu ljósi. Frekar mætti segja að myndin væri ádeila á svokallaða eitraða karlmennsku, hjarðarhegðun, kapítalisma og neysluhyggju.

Sagan skoðar fyrst og fremst krísu nútíma karlmannsins í póst-módernísku samfélagi. Meðlimir klúbbsins sjá það sem lausn á stöðnun sinni að umgangast aðra karlmenn í sambærilegri tilvistarkreppu og gera ofbeldi að eins konar íþrótt, sem þeir upplifa sem leið til að endurheimta glataða karlmennsku sína. Það er ekki fyrr en að klúbburinn þróast hægt og bítandi í borgaralegan hryðjuverkahóp að endurheimt karlmennskunnar verður að voðaverki.

Við upphaf sögunnar leitar aðalpersónan sér huggunar í margs konar stuðningshópum þar sem hún grætur. Staðalímynd karlmannsins hefur yfirleitt falið það í sér að skömm fylgi því að gráta, en innan veggja stuðningshópanna fær sögumaðurinn að sýna hvað í honum býr. Söguhetjan finnur sig hins vegar ekki fyrr en í slagsmálaklúbbnum, sem hefur bækistöðvar í dimmum kjallara, þar sem dýrið í karlmanninum býr og getur fengið útrás.

Markmið hryðjuverkanna hjá klúbbnum snýst ofar öllu um byltingu gegn neyslusamfélaginu. Tyler Durden finnur fljótlega sinn sess sem spekingur og lærifaðir týndu karlmannanna og hyggst losa þá úr fjötrum eigna sinna, enda eru flestir karlmenn að hans mati orðnir þrælar merkimiða. Durden bendir þessum mönnum eftirminnilega á þá staðreynd að þeir séu ekki flotti bílinn sem þeir aka á, innistæðan í bankanum, íbúðin sem þeir eiga eða fínu jakkafötin.

 

10 sturlaðar staðreyndir um myndina sem ekki má ræða – en við gerum samt

Palahniuk, höfundur bókarinnar, fékk hugmyndina að sögunni eftir að það var ráðist á hann í útilegu.

Framleiðendur vildu fá Russell Crowe í hlutverk Tylers Durden áður en Brad Pitt gekk frá samningnum.

Eins og glöggir aðdáendur vita, er persóna Edwards Norton aldrei nefnd á nafn, en ýmsar getgátur eru dreifðar um alla söguna.

Brad Pitt og Helena Bonham-Carter eyddu þremur dögum í að taka upp kynlífshljóð og ánægjustunur fyrir ástarsenur sem aldrei sjást í mynd.

Í myndinni sjást þeir Pitt og Norton slá golfkúlur með kylfum fyrir utan húsið þeirra og áttu báðir að vera ölvaðir. Þetta krafðist víst ekki mikilla leikhæfileika í ljósi þess að báðir leikarar voru blindfullir þegar upptökur senunnar fóru fram.

Marla Singer reykir svo oft í myndinni að leikkonan fékk bronkítis meðan á tökum stóð, en hún notaðist við alvöru sígarettur í hverri töku.

Bæði Norton og Pitt er meinilla við Volkswagen-bjöllur og kröfðust þeir þess að ein bifreiðin sem þeir berja í með hafnaboltakylfum væri einmitt slík bifreið. Þeim var afar skemmt.

Gervibrjóst söngvarans Meat Loaf í myndinni eru uppfull af fuglafræjum í raun.

Báðir aðalleikarar myndarinnar lærðu að búa til sápu við gerð hennar.

Brad Pitt mælti harðlega gegn því að foreldrar hans sæju myndina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Í gær

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna