fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Aníta Briem: „Það eru fokking milljón hlutir sem ég óttast mest“

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 2. nóvember 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Aníta Briem hefur í nógu að snúast og leggur mikið upp úr því að láta alltaf gott af sér leiða. Aníta býr í Los Angeles og hefur gert það síðastliðinn áratug en var nýverið stödd á landinu við tökur á sjónvarpsþáttunum Ráðherrann. Aníta er í yfirheyrslu helgarinnar og segir meðal annars frá nokkrum leyndum hæfileikum sínum.

 

Hver var fyrsta vinnan þín?
Þegar ég lék Ídu í Emil í Kattholti í Þjóðleikhúsinu þegar ég var níu ára. Það var flaggað í heila stöng og ég heimtaði að taka stætó ein, því nú væri ég orðin fullorðin, vinnandi kona.

Hvar líður þér best?

Á setti. Eða bara í miðju verkefni.

Hvað óttastu mest?

Vildi að ég gæti sagt æ, ekki svosem neitt en það eru fokking milljón hlutir sem ég óttast mest. Velferð og öryggi stelpunnar minnar númer 1,2 og 3. En svo líka bara að tíminn hlaupi frá mér áður en að ég get gert allt sem ég vil gera, að það að hræðsla við það sem fólk finnst um mig komi í veg fyrir að ég komi frá mér því sem mér liggur á hjarta, að mistakast almennt, að ég hafi gert mistök í lífinu sem ég nái ekki að koma mér upp úr … bla bla bla. Segi við sjálfa mig oft á dag Þegar þú liggur á dánarbeðinum, sama hvenær það er, muntu hugsa að þú sért kjánaprik að hugsa svona um þessa hluti, að vera hrædd við þessa hluti?! Svarið er auðvitað alltaf „já“. En samt þarf ég að spyrja mig næstum daglega.

Hvert er þitt mesta afrek?

Ég gleymi því aldrei þegar ég komst inn í leiklistarskólann minn í London. Þá var ég VERULEGA stolt af sjálfri mér. Og svo er dóttir mín einstaklega vel heppnaður einstaklingur sem ég er stolt af að eiga kannski einhvern hlut í. En þessi spurning minnir mig á að vera duglegri að staldra við og heiðra öll litlu afrekin.

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?

Einu sinni söng ég á klúbbi þar sem ég seig niður í fuglabúri. Furðustarf fyrir furðufugl kannski.

Besta ráð sem þú hefur fengið?

Aldrei ræða alvarlega hluti eftir klukkan 23. Það kemur aldrei neitt gott út úr því.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?

Kannski að þrífa veggi. Það er leiðinlegt. Mér finnst gott að hafa hreint í kringum mig. Uppáhaldsverkin mín eru samt í garðinum. Hlúa að öllum ávaxtatrjánum og tómötunum mínum. Fylgist vandlega með býflugnastarfsemi og vexti og tala við þau. Sorrí, var ekki spurningin.

Hver er fyrirmynd þín í lífinu?

Mamma, Katrín systir, amma Ella, amma Dísa. Allar magnaðar konur. Og Henry Miller er mér mikilvægur. Þegar ég er smá týnd eða komin með allt of mikið í hausinn, les ég alltaf aðeins eftir hann, eða hlusta á gömul viðtöl. Hans tilfinning fyrir öllu áþreifanlegu í lífinu, hvernig þú nýtur þess að borða góða máltíð, drekka í þig falleg málverk, finna lyktina af iðandi mannlífi, eða hlusta á líkama þinn og „impúls“ á kannski einfaldan hátt, minnir mig á hversu fallegt það er að vera á lífi.

Besta bíómynd allra tíma?

Godfather 2. Hún er svo stórkostlega vel gerð og áhrifamikil í alla staði. Og tímalaus. En svo elska ég líka Breaking the Waves með Emily Watson og Secretary með Maggie Gyllenhaal. Ég tengi mikið við myndir um fólk á jaðrinum, enda upplifi ég mig alltaf þar. Að passa ekki í neina kassa og hvernig maður glímir við það, að þora að taka pláss utan normsins. Sögur og bíómyndir eru svo fallegir leiðarvísar í lífinu. Gefa okkur tækifæri að skilja hluti sem við þekkjum ekki og huggun með það sem ólgar inni í okkur.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?

Sjáum til“. Það sagði pabbi alltaf þegar hann meinti nei.

Hverjir eru mannkostir þínir?

Ég er tillitssöm, næm á tilfinningar annarra og legg mikið upp úr því að reyna láta alltaf gott af mér leiða. Vinur vina minna.

En lestir?

Mjög sjálfsgagnrýnin, jaðrar oft við sjálfshatur. Ekki gagnlegt! Svo var ég frekar langrækin, en er hætt því að mestu. Árin kenna manni að þegar fólk hagar sér illa, liggur oft meira að baki en maður sér og sjálfur gerir maður oft mistök. Lífið er of stutt til að vera reiður og oft kemur samband bara dýpra undan erfiðleikum ef maður nær að vinna sig í gegn.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?

Að geta spilað á píanó eins og Katrín systir. Og fara í handahlaup.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?

Þrátt fyrir að ég hafi tekið stórar ákvarðanir í lífinu, svo sem að flytja til London þegar ég var 16, eða flytja svo til Los Angeles, hef ég alltaf nálgast það með slatta af kæruleysi og ekki séð það sem áhættu. Þó að kannski hafir þær verið slíkar? Þegar ég tek stórar ákvarðanir hugsa ég bara; hvað er það versta sem getur gerst? Ef mér líkar það ekki, þá bara breyti ég því aftur.
Hvað er á döfinni hjá þér?

Ég er að skrifa og þróa tvö verkefni. Og byggja hús. Og svo er ég að fara að leika í „debutmynd“ Tinnu Hrafnsdóttur, Skjálfti, á næsta ári. Hún er byggð á bók Auðar Jónsdóttur og er einstaklega fallegt og djúpt verkefni sem ég hef hafið undirbúning fyrir. Ég eyddi hálfu ári á Íslandi við tökur á sjónvarpsseríunni Ráðherrann og finnst ótrúlega gefandi að fara aftur meira í skandinavíska tóna í verkefnum. Kannski er hjartað aðeins að koma heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla