Hrafnhildur Rafnsdóttir heldur úti gríðarlega vinsælli YouTube-rás með yfir 168 þúsund áskrifendur. Hún gerir myndbönd um Ísland og íslensku sem hafa slegið í gegn á miðlinum. Hrafnhildur notar nafnið Hrafna á YouTube og fékk DV að kynnast henni betur í viðtali í júlí 2019.
Í nýjasta myndbandi hennar: „Íslendingur reynir að tala norræn tungumál“, reynir Hrafna, eins og titillinn gefur til að kynna, að tala norræn tungumál eins og norsku og færeysku. Yfir 70 þúsund manns hafa horft á myndbandið.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.