fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Tveir áhrifavaldar stungu af

Fókus
Sunnudaginn 6. október 2019 12:45

Lína Birgitta. DV/Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonurnar og áhrifavaldarnir Lína Birgitta og Berglind Saga stungu af úr köldu haustvindunum alla leið í sólina á Kanaríeyjum, nánar tiltekið Gran Canaria. Þær eru í óðaönn að sýna frá þessu á samfélagsmiðlum sínum og kemur þar meðal annars fram að þær gista á fimm stjörnu hótelinu Lopesan Baobab Resort þar sem nóttin kostar um þrjátíu þúsund krónur.

https://www.instagram.com/p/B3Jyf-vBfGS/

Athygli vekur að hótelið sem og ferðaskrifstofan Úrval Útsýn eru merktar inn í margar færslurnar en hins vegar ekki tekið fram að um auglýsingu sé að ræða. Lína Birgitta hefur sjálf sagt í viðtali við DV að hún vinni ekki fyrir hvern sem er, þótt hún hafi í upphafi ferilsins þegið vörur án endurgjalds og gert skiptidíla. Í dag velji hún viðskiptavini sína vel. „Ég vil að brandið þitt passi við mig og ég passi við brandið þitt,“ sagði hún í viðtali við DV. Í sama viðtali sagði hún að hægt væri að þéna vel á samfélagsmiðlum, þá sérstaklega þegar áhrifavaldar væru búnir að ná langt og þyrftu ekki lengur að auglýsa vörur frítt. „Já, það eru peningar í samfélagsmiðlum. Það er hægt að fá góðan pening úr samfélagsmiðlum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig