Atli Sigþórsson, best þekktur sem rapparinn Kött Grá Pje, tísti í gær að hann væri mjög einmana. Þó Íslendingar á internetinu séu helst þekktir fyrir að rífast stanslaust þá sýndu viðbrögðin við þessu tísti það er ekki algilt. Líkt og ein kona skrifaði í athugasemd: „Ég fíla alla í þessum þræði.“
Athugasemdir við færsluna einkennast helst af einlægri samkennd og von um betri tíð. „Þekki þig bara úr tónlistinni og hér í twitterkúlunni. Vildi bara senda þér faðmlag og segja þér að mér finnst þú osom,“ skrifar einn maður til að mynda. Kona nokkur tekur undir og skrifar: „Þekki þig ekki nema af tvítum…langaði bara að segja knús. Mér finnst þú frábær.“
Sumir sendu Atla myndir af gæludýrum eða börnum og sendu honum rafrænt knús. Kona nokkur reyndi að hughreysta Atla. „Það er vont, bæði að heyra og vera. Vona að þér líði minna einmana og ekki einmana inn á milli. Ég hugsa alltaf hlýlega til þín,“ skrifaði hún.
Sumir voru lausnamiðaðir, líkt og Karl nokkur. „Mér finnst gott þegar ég er einmana að hugleiða kærleika og ást, vegna þess að vissu leyti sprettur hún upp úr okkur sjálfum, og þannig maður getur verið sín eigin kamína í annars köldum kosmós,“ skrifaði hann. Tónlistamaður Svavar Knútur stakk upp á því að þeir myndu hittast: „<3 alltaf til í kaffi og meððí! <3“
Ég er mjög einmana.
— Kött Grá Pje (@KottGraPje) October 13, 2019