fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Bókmenntahátíðin í fyrsta sinn að vori

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 31. janúar 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík verður haldin dagana 24.-27. apríl en þetta er í fyrsta sinn sem hún fer fram að vori. Allt frá árinu 1985 hefur hún verið í september, að jafnaði annað hvert ár.

Til landsins koma höfundar frá fjölmörgum löndum en verk margra þeirra hafa verið eða verða gefin út á Íslandi í tilefni af hátíðinni. Í ár litast hátíðin meðal annars af því að hundrað ár eru frá því að fyrsta skáldsaga Halldórs Laxness kom út og verður efnt til alþjóðlegs málþings af því tilefni. Þá verða heiðursverðlaun þýðenda af íslensku á erlend mál veitt í þriðja sinn. Að venju verða upplestrar, umræður og fyrirlestrar og er aðgangur ókeypis á alla viðburði og allir velkomnir.

Í ár er hátíðin í fyrsta skipti að vori og urðu dagarnir í lok apríl eftir Dag bókarinnar fyrir valinu. Á þessum tíma er mikill blómi í bókaútgáfu og vorbækurnar streyma úr prentsmiðjum, bæði íslenskar og erlendar.

Hátíðin fer fram í Norræna húsinu og í Iðnó og verður dagskráin fjölbreytt að vanda; fyrirlestrar, upplestrar, samtöl á sviði, uppistand, bókaball og fleira. Hátt í tuttugu erlendir höfundar taka þátt og hafa þeir margir komið út í íslenskum þýðingum eða eru væntanlegir á íslensku. Íslenskir höfundar taka einnig þátt. Þá er hingað boðið erlendum bókaútgefendum í þeim tilgangi að kynna þeim íslenskar bókmenntir og rithöfunda, og auk þess koma erlendir fjölmiðlar á hátíðina.

Í ár er þema hátíðarinnar aðlögun og er þar vísað til margs konar aðlögunar svo sem aðlögunar að kvikmynda- eða sjónvarpsþáttaforminu, aðlögunar að breyttum aðstæðum í breyttum heimi, svo sem vegna loftslagsbreytinga, breytinga á tungumálinu og aðlögunar okkar að nýjum heimkynnum.

Líkt og árið 2017 þjófstartar Bókmenntahátíðin í Reykjavík í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þar verður bókmenntadagskrá haldin þann 23. apríl, með þátttöku erlendra og innlendra höfunda auk lesenda, og verður þessi dagskrá kynnt nánar síðar. Þessi dagskrá er skipulögð í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.

Heiðursverðlaun þýðenda af íslensku á erlend mál, Orðstír, verða afhent í þriðja skiptið á hátíðinni. Þau voru fyrst afhent árið 2015 og hlotnast þau tveimur þýðendum sem hafa þýtt íslenskar bókmenntir á erlendar tungur. Að verðlaununum standa, auk hátíðarinnar, Íslandsstofa, Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka og embætti forseta Íslands.

Á hátíðinni verður einnig alþjóðlegt málþing helgað Halldóri Laxness en í ár eru liðin 100 ár síðan fyrsta skáldsaga hans Barn náttúrunnar kom út. Þingið var haldið í Osló í nóvember síðastliðnum og verður hluti þess haldinn hér á landi í samstarfi við Gljúfrastein og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Barnadagskrá verður skipulögð fyrir unga lesendur, smiðjur og sögustundir, og fer hún fram í Norræna húsinu.

Sem fyrr er ókeypis inn á alla viðburði hátíðarinnar og þeir öllum opnir. Dagskráin fer fram á ensku en upplestrar eru allir á móðurmáli höfunda með þýðingum á íslensku. Barnadagskráin fer fram á íslensku. Heildardagskráin verður kynnt í apríl og höfundar verða kynntir á samfélagsmiðlum í aðdraganda hátíðarinnar. Bækur eftir höfunda á hátíðinni verða fáanlegar í Pennanum Eymundsson.

Bókmenntahátíð í Reykjavík nýtur stuðnings Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Reykjavíkur Bókmenntaborgar Unesco, Norræna hússins, Félags íslenskra bókaútgefenda og Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Þá sækir hátíðin styrki í ýmsa sjóði og á í samstarfi við fjölmargar stofnanir og félög.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla