Árleg útflutningskeppni sjávarútvegsins, Hnakkaþon, hefst á morgun. Keppnin er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Keppendur takast á við áskorun tengdri íslenskum sjávarútvegi á þremur sólarhringum. Sjö lið eru skráð til leiks í Hnakkaþoninu, með alls 30 nemendum.
Áskorunin snýr að neytendahegðun og hvernig fyrirtæki getur mætt óskum framtíðarneytenda. Keppendur þurfa að setja saman áætlun um hvernig þeir myndu selja afmörkuðum markhópi í Bandaríkjunum íslenskan fisk. Áskorunin krefst því lausna á sviði neytendahegðunar, markaðssetningar og áætlanagerðar.
Verðlaun fyrir fyrsta sætið í Hnakkaþoninu er ferð til Boston í boði Icelandair Group og bandaríska sendiráðsins á Íslandi. Í ferðinni er stærsta sjávarútvegssýning í N-Ameríku, SeaFood Expo, heimsótt. Hnakkaþon hefur verið haldið árlega síðan 2015. Markmið keppninnar er að kynna tækifæri til nýsköpunar og fjölbreytt störf sem íslenskur sjávarútvegur býður upp á.