fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

25 hlutir sem þú vissir hugsanlega ekki um Friends

Fókus
Sunnudaginn 22. september 2019 11:00

Einn þátt fengum við ekki að sjá í upprunalegri mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsti þátturinn af Friends var sýndur 22. september árið 1994 – Hér eru 25 staðreyndir um þættina á 25 ára afmælinu.

1. Nafnaþras

Handritshöfundarnir David Crane og Marta Kauffman kölluðu þættina upphaflega Insomnia Café. Eftir að sjónvarpsstöðin NBC keypti fyrsta þáttinn (e. Pilot) var nafninu breytt í Friends Like Us, síðan í Across The Hall og því næst Six of One. Loks var ákveðið að kalla þættina einfaldlega Friends.

2. Örlögin

Lisa Kudrow, sem lék hina sérstöku Phoebe, fékk upprunalega hlutverk Roz í þáttunum Frasier. Hins vegar náði Lisa ekki nógu góðri tengingu við leikaraliðið þegar fyrsti þáttur Frasier var tekinn upp og var hún rekin. Því var hún laus til að leika í Friends.

3. Vildi ekki Rachel

Framleiðendurnir vildu upprunalega að Courteney Cox léki Rachel. Courteney fór hins vegar fram á hlutverk Monicu því henni líkaði hve sterkur karakterinn var. Því fór hlutverk Rachel til Jennifer Aniston.

4. Margir í prufu

Eric McCormack, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Will í Will & Grace, fór í prufu fyrir hlutverk Ross. Spéfuglarnir Kathy Griffin og Jane Lynch fóru báðar í prufu fyrir hlutverk Phoebe. Leah Remini reyndi fyrir sér sem Monica og Teu Leoni bauðst hlutverk Rachel en hafnaði því. Þá fóru Jon Favreau og Jon Cryer báðir í prufu fyrir hlutverk Chandler.

Skrýtið tvist Apinn Marcel kom óvænt inn í Friends.

5. Bæ, bæ api

Gæluapi Ross, Marcel, var skrifaður úr þáttunum því það tók svo mikinn tíma að taka upp senur með dýrinu.

6. Tapaði veðmáli

Leikarinn Bruce Willis gaf launin sem hann fékk fyrir leik í þáttunum til góðgerðamála því hann tapaði veðmáli við Matthew Perry, sem leikur Chandler, um hvernig myndin sem þeir léku saman í árið 2000, The Whole Nine Yards, myndi ganga í kvikmyndahúsum.

Umdeildur kærasti Bruce Willis lék kærasta Rachel um tíma.

7. Héldu að hann væri hommi

Margir héldu að Chandler væri samkynhneigður í fyrstu – meira að segja Lisa Kudrow þegar hún las handritið yfir.

8. Tvisvar í meðferð

Matthew Perry fór tvisvar sinnum í áfengismeðferð á meðan Friends-þættirnir voru til sýninga í sjónvarpi. Hann glímdi líka við fíkn í lyfseðilsskyld lyf en hélt því fram að hann hefði aldrei verið „í vímu í vinnunni“, heldur bara „mjög timbraður“.

9. Nei, takk

Titillag þáttanna átti fyrst að vera Shiny Happy People með REM en hljómsveitin afþakkaði boðið.

10. Hræðilegi hundurinn

Styttan af hvíta hundinum sem Joey átti var í eigu Jennifer Aniston. Vinur hennar gaf henni styttuna sem lukkugrip þegar Friends-þættirnir hófu göngu sína.

Í órafjarlægð Þessi gosbrunnur er alls ekki á Manhattan.

11. Langt í burtu

Gosbrunnurinn í upphafi þáttanna er ekki á Manhattan í New York, þar sem þættirnir gerast, heldur í Burbank í Kaliforníu, í 4.500 kílómetra fjarlægð.

12. Of lauslát

Framleiðendum fannst Monica of lauslát í fyrsta þættinum þar sem hún gleymir nafni rekkjufélaga síns. Áhorfendur í sal voru spurðir um þetta atriði og fannst öllum það fínt, þess vegna fékk atriðið að standa.

13. Jafnræði leikara

Þegar Friends-þættirnir hófu göngu sína árið 1994 fengu aðalleikararnir 22 þúsund dollara á þátt, tæpar þrjár milljónir króna. Í sjöttu seríu var mikið misræmi á milli launa og því kröfðust aðalleikararnir sex sömu launa. Við lok þáttaraðarinnar fékk hver um sig eina milljón dollara per þátt, um 124 milljónir króna.

14. Simpsons í Friends

Þrjár Simpsons-stjörnur léku í Friends; Dan Castellaneta, rödd Homers, Hank Azaria, rödd Moe, og Harry Shearer, rödd herra Burns.

15. Aldursleikur

Courteney Cox er tveimur árum eldri en David Schwimmer, en lék samt litlu systur hans í þáttunum.

16. Hætt við ástina

Áður en leikarar voru valdir áttu Monica og Joey að vera parið sem allt hringsnerist um í þáttunum. Sú hugmynd var sett á ís eftir fyrsta þáttinn.

17. Allir kyssa alla

Allar aðalpersónurnar hafa kysst hver aðra nema Monica og Phoebe.

Stelur senunni Gunther á margar ógleymanlegar innkomur.

18. Kaffibarþjónn í raun

James Michael Tyler starfaði í alvöru sem kaffibarþjónn og var ráðinn sem aukaleikari í Friends áður en hann hreppti hlutverk kaffibarþjónsins Gunthers.

19. Enginn glaður

Áhorfendur voru ekki glaðir þegar að Rachel og Joey byrjuðu saman árið 2002. Leikararnir voru ekki heldur ánægðir og sagði Matt LeBlanc, sem leikur Joey, ráðahaginn vera „virkilega óviðeigandi.“

Skrýtið samband Það var enginn sáttur við að Joey og Rachel byrjuðu saman.

20. Vildi ekki Phoebe

Grínistinn Ellen DeGeneres afþakkaði hlutverk Phoebe og byrjaði með sinn eigin gamanþátt, Ellen, sama ár og Friends hófu göngu sína, árið 1994.

21. Maðurinn á bak við nektina

Það var leikarinn Jon Haugen sem fór með hlutverk „Ugly Naked Guy“, feita leigjandans í byggingunni á móti íbúð Monicu.

Mikilvæg persóna Potað í feita, ljóta manninn.

22. Alltaf sein

Jennifer Aniston var mjög oft sein á settið og var hún oft skömmuð af meðleikurum sínum, sérstaklega David Schwimmer.

23. Hætti næstum við

Jennifer Aniston dró sig næstum því úr síðustu seríunni árið 2004 þar sem hún var búin að skapa sér nafn í kvikmyndabransanum með myndum á borð við Picture Perfect, Bruce Almighty og Along Came Polly.

24. Raunveruleikinn verður leikur

Það var aldrei ætlunin að Chandler væri kjánalegur í samskiptum sínum við kvenfólk. Því var bætt inn í handritið eftir að Matthew Perry sagði framleiðendum að hann ætti erfitt með samskipti við hitt kynið.

25. Krúttlegt stemning

Leikaraliðið safnaðist saman í þyrpingu fyrir hvern einasta þátt til að óska hvert öðru góðs gengis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“