Leikarinn Ryan Reynolds er með skopskynið í lagi og ákvað að setja það í botn á afmælisdegi eiginkonu sinnar, leikkonunnar Blake Lively, en hún fagnaði 31 árs afmæli sínu í gær.
Ryan nýtti Instagram-síðu sína til að gera grín og birti allar verstu myndirnar af eiginkonunni sem hann fann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ryan óskar eiginkonu sinni til hamingju með afmælið á þessa leið en árið 2017 birti hann mynd af þeim saman á rauða dreglinum, þar sem varla sást í Blake.
Ryan og Blake kynntust snemma árs 2010 við tökur á kvikmyndinni Green Lantern. Í október árið 2011 voru sagðar fréttir af ástarsambandi þeirra og í september ári síðar gengu þau í það heilaga. Þau eiga tvær dætur saman, James sem fædd er í desember 2014, og Inez sem fædd er í september 2016. Í maí síðastliðnum tilkynntu þau síðan að þau ættu von á sínu þriðja barni.