fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Sterkasta kona Íslands gagnrýnd fyrir holdafar: „Ég er þung og mikil en ég er fullkomlega heilsuhraust“

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 22. júní 2019 14:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Ósk Jónasdóttir aflraunakona hefur alltaf heillast af því að vera sterk og þegar hún var ung að aldri voru fyrirmyndir hennar í lífinu þeir Jón Páll, Magnús Ver og Hjalti Úrsus. Þegar Ragnheiður var orðin eldri rakst hún viðtal við sterkustu konu Íslands þar sem einnig var verið að sýna frá keppninni. Það var á þeim tímapunkti sem Ragnheiður áttaði sig á því að þetta sport væri eitthvað sem hana langaði að gera.

Það var þó ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem hún tók þátt í sínu fyrsta móti þar sem hún lenti í 9. sæti af 14. Segir Ragnheiður þá keppni hafa markað tímamót í lífi hennar og eftir það varð ekki aftur snúið.

Frá æfingu Ragnheiðar / Mynd: Eyþór Árnason

Í dag ber Ragnheiður titilinn Sterkasta kona Íslands og æfir hún aflraunir af kappi auk þess að stunda kraftlyftingar. Ragnheiður ræddi við blaðamann um lífið sem kona í aflraunum, hvað íþróttin hefur gert fyrir hana og þá fordóma og gagnrýni sem konur í kraftsporti hafa þurft að mæta.

Hafði aldrei æft kraftasport

„Ég man að í viðtalinu sem ég sá var sýnt frá mótinu og ég hugsaði hvað ég væri mikið til í að gera einmitt þetta. Sportið var mjög spennandi og ég vissi strax að ég hefði gaman af því. Það að sjá konur líka stunda þetta en ekki bara karlmenn var æðislegt, en það var ekki fyrr en mörgum árum seinna sem ég tók þátt. Þá sá ég auglýst eftir þátttöku í Sterkustu konu Íslands og á þeim tíma hafði ég ekki æft neitt kraftasport en var byrjuð að taka mig á í ræktinni eftir barnsburð. Ég ákvað í algjöru flippi að láta vaða og vera með og eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir Ragnheiður einlæg.

Ég ákvað í algjöru flippi að láta vaða og vera með og eftir það varð ekki aftur snúið,“
„Ég ákvað í algjöru flippi að láta vaða og vera með og eftir það varð ekki aftur snúið.“ / Mynd: Eyþór Árnason

Ragnheiður er í dag tuttugu og átta ára gömul, búsett í Hafnarfirði ásamt unnusta sínum og fjögurra ára gömlum syni þeirra. Ragnheiður æfir í dag aflraunir að minnsta kosti fimm sinum í viku og stundum oftar. Segir hún muninn á kraftlyftingum og aflraunum oft vera misskilinn meðal fólks og þrátt fyrir að hún stundi gjarnan báðar íþróttirnar þá séu aflraunir hennar sterkasta hlið.

„Aflraunir snúast um að vera sterkust eða sterkastur og að koma hlutum frá A til B. Kraftlyftingar snúast hins vegar um þrjár stórar og tæknilegar lyftur, bæði flokkast þetta þó undir kraftasport. Æfingar mínar er rosalega fjölbreyttar en í grunninn geri ég styrktaræfingar ásamt tæknilegum lyftum. Þegar ég er svo að undirbúa mig fyrir mót æfi ég sérstaklega greinarnar sem verða á mótinu og fókusa á það að laga veikleika til þess að verða betri.“

„Í dag veit ég hver ég er og hvað ég hef að bjóða.“ / Mynd: Eyþór Árnason

Ótrúleg upplifun að sigra

Segir Ragnheiður aflraunirnar gera mikið fyrir sig bæði andlega og líkamlega.

„Maður setur sér markmið og vinnur eins og maður getur til þess að ná þeim, síðan uppsker maður af því. Þetta hefur hjálpað mér að sjá hvers ég er megnug og hefur það komið sjálfstrausti mínu á þann stað að í dag veit ég hver ég er og hvað ég hef að bjóða. Þegar ég tók þátt í fyrsta skiptið í Sterkustu konu Íslands var ég alveg óreynd en ég átti ótrúlega skemmtilegan dag. Á svona mótum eru engin félög sem halda utan um þau, heldur eru mótshaldarar sem eru oftast sjálfboðaliðar og ákveða þeir greinar og þyngdir. Oftast er skipt í þyngdarflokka en stundum er bara einn opinn flokkur þar sem þyngd keppenda skiptir ekki máli. Ég hef fjórum sinnum tekið þátt og hafa verið um 10-15 keppendur á hverju móti.“

Á síðasta ári tók Ragnheiður þátt í keppninni um titilinn Sterkasta kona Íslands í fjórða skiptið og bar hún þá sigur úr býtum í fyrsta sinn síðan hún hóf að taka þátt.

„Ég ber titilinn fram að næsta móti sem verður haldið 27. júlí næstkomandi og þá kemur í ljós hvort ég haldi honum eða hvort önnur kona sigri og taki hann. Það var alveg ótrúlegt að sigra þessa keppni. Ég var svo glöð að öll vinnan sem ég hafði lagt á mig skilaði sér.“

Ragnheiður telur tímana vera að breytast og að fleiri konur séu farnar að æfa aflraunir og kraftlyftingar. / Mynd: Eyþór Árnason

Konur eiga bara að vera sætar og sexí

Aðspurð út í fordóma eða gagnrýni á konur í íþrótt sem lengi hefur verið kennd við karlmenn segist Ragnheiður ekki beint hafa fundið fyrir því persónulega en að mjög augljóst sé að viðhorf margra sé enn úrelt.

„Konur eiga bara að vera sætar og sexí á brennslutækjunum. Það er ekkert að því ef að konum finnst skemmtilegt að æfa svoleiðis, alveg alls ekki en þessi forræðishyggja varðandi það að allar konur skuli vera eins, og það að konur eigi ekki að vera stórbyggðar eða sterkar er mikil. Maður sér gagnrýni á miðlum, í samfélaginu og úti í heimi.“

Telur Ragnheiður tímana sem betur fer vera að breytast hægt og rólega en viðurkennir hún að hlutirnir gerist ekki nema að konurnar sjálfar breyti þeim.

„We are the change, eins og ein góð vinkona mín segir. Ég reyni mitt besta til að fá fleiri tækifæri fyrir okkur konurnar að koma sportinu á framfæri og ég sé að fleiri konur eru að bætast við. Það er svo æðislegt að kynnast þeim konum sem taka þátt og það er svo góður andi á milli allra. Það besta í þessu er að við hvetjum allar hvor aðra sama þótt við séum andstæðingar. Maður vonar alltaf að hinum takist það sem þær eru að gera. Smátt og smátt er viðhorfið að breytast.“

„Kílóafjöldi eða stærð segi ekki neitt til um heilsu manneskjunnar.“ / Mynd: Eyþór Árnason

Sagt að hún ætti að grenna sig

Á dögunum fékk Ragnheiður gagnrýni á holdafar sitt þar sem henni var tjáð það að hún væri slæm fyrirmynd og að hún ætti að grenna sig.

„Fyrir ári síðan hefði ég tekið þessu illa og farið í vörn, en í dag veit ég hver ég er og ég læt ekki fólk með sínar skoðanir á mér hafa áhrif á mig. Ég er þung og mikil en ég er fullkomlega heilsuhraust fyrir utan smá bakverki sem ég er löngu orðin vön enda glímt við þá síðan ég var krakki. Ég borða í takt við það sem ég er að gera og er með þjálfara sem mælir mig og tekur stöðuna á mér. Blóðþrýstingur og almenn heilsa hefur alltaf verið tipp topp og bara til þess að koma með dæmi, til þess að sýna fólki að kílóafjöldi eða stærð segi ekki neitt til um heilsu manneskjunnar eða það hvernig hún er byggð að innan, þá er ég 130 kíló en af þeim eru aðeins 35 kíló fita.

Það að horfa á einhvern einstakling gerir fólk ekki að heilsufarslöggum og það að þykjast hafa „áhyggjur“ af heilsu fólks er bara til þess að fela fitu- og líkamsfordóma. Fólk á að geta verið til án þess að ókunnugir skipti sér af heilsu þeirra, vitandi ekkert um lífshætti manneskjunnar. Við eigum öll skilið að vera til og vera hamingjusöm í okkar skinni. Við deyjum jú öll á endanum og ég ætla ekki að vera gellan sem allir muna eftir af því að hún var vel vaxin, sæt og fín fyrir samfélagið. Nei, fólk man eftir okkur vegna þess sem við gerum í lífinu, hvernig manneskjur við erum að innan og hvernig við komum fram við aðra. Ég ætla því ekki að láta svona skoðanir hafa áhrif á mig. „You do you,“ og ég reyni mitt besta að bera boðskap þess að elska sjálfan sig og hugsa vel um sig. Sama hvernig maður lítur út því að við eigum öll skilið að okkur líði vel. Það gerist ekki ef við erum alltaf ósátt og að reyna að breyta okkur til þess að fitta inn í staðla samfélagsins.“

Aflraunir er það skemmtilegasta sem Ragnheiður hefur gert / Mynd: Eyþór Árnason

Ætlar að reyna að verja titilinn

Þann 17. júní síðastliðinn tók Ragnheiður þátt í keppni sem heitir Stálkonan og landaði hún þriðja sætinu í þeirri keppni.

„Stigin skiptust rosalega jafnt á milli okkar allt mótið en ég endaði í þriðja sæti. Þetta var sjúklega skemmtilegur dagur og þvílíka blíðan sem við fengum. Vanalega höfum við fengið rigningu og ský en ekki 18 gráður og sól. Það var líka rosalega mikið af fólki að horfa og góð stemning. Ég tek næst þátt í mótinu Valkyrja og Víkingur Hornafjarðar sem haldin verður á Humarhátíðinni á Höfn og svo mun ég reyna að verja titilinn um Sterkustu konu Íslands þann 27. júlí. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri og ég hvet konur sem hafa áhuga á svona sporti að láta vaða og prófa. Hugsið vel um ykkur og gerið það sem þið viljið, ekki leyfa skoðunum annarra hafa áhrif á ykkar hamingju. Ef ykkur vantar stuðning til þess að byrja þá er ég, ásamt fleiri konum, alltaf til í að hjálpa öðrum að komast af stað.“

Fimm fyrirmyndir Ragnheiðar:

Jón Páll Sigmarsson:

Karakterinn og manneskjan sem hann hafði að geyma var æðisleg og það er það sem hann er þekktastur fyrir í aflraunaheiminum fyrir utan styrkinn auðvitað.

Jón Páll Sigmarsson

Lilja B. Jónsdóttir:

Hún er hörkudugleg, jákvæð og góð manneskja út í eitt. Hún er mín fyrsta fyrirmynd í aflraunum kvenna á Íslandi.

Donna Moore:

Hún er bara svo flott og hrikaleg. Enda sterkasta kona heims!

Donna Moore / Sterkasta kona heims

Karen Skalvoll:

Ég kynntist henni árið 2017 þar sem við kepptum á sama móti en hún í flokki fatlaðra. Hún er með lungnasjúkdóm sem mun einn daginn draga hana niður sex fetin en hún lætur það ekki stoppa sig í því að gera það sem hún vill og elskar. Hún er einstök og hún á hjarta mitt.

Ellen Lind Ísaksdóttir:

Hún er besta vinkona mín, er með sinn eigin rekstur og er hörkudugleg að æfa og keppa með mér. Svo er hún líka æðisleg góð manneskja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki