Söngkonan Adele er skilin við eiginmann sinn til tveggja ára, Simon Konecki. Us Weekly segir frá.
„Adele og maki hennar eru skilin,“ er haft eftir blaðafulltrúa söngkonunnar. „Þau hafa einsett sér að ala son sinn upp saman með kærleik að vopni. Þau biðja um að einkalíf þeirra sé virt, að venju.“
Adele og Simon eiga soninn Angelo, sex ára saman.