Sjónvarpskonan og spéfuglinn Berglind Festival leitar að vinnu ef marka má Twitter-síðu hennar. Þar segist hún hætta hjá Símanum í sumar og leyfir fylgjendum sínum að ráða hvað hún tekur sér næst fyrir hendur.
„Hvar á ég að fara að vinna þegar ég hætti hjá Símanum í sumar? Þið megið ráða,“ tístir Berglind og athugasemdirnar láta ekki á sér standa.
hvar á ég að fara að vinna þegar ég hætti hjá símanum í sumar? þið megið ráða
— Berglind Festival (@ergblind) April 10, 2019
Berglind fær ýmsar uppástungur um vinnu, þar á meðal að hún gæti unnið sem dagmamma, framkvæmdastjóri Júdósambands Íslands, fengið vinnu í Bauhaus eða gengið í slökkviliðið.
Þá eru einhverjir sem vilja endilega að Berglind verði fastráðin á RÚV, en hún hefur gert gott mót með innslögum sínum í skemmtiþættinum Vikan með Gísla Marteini.
Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Dominos á Íslandi, býður Berglindi vinnu.
Au pair hjá mér. Borga í kampavíni og pizzu
— Anna Fríða Gísladóttir (@AnnaFridaGisla) April 10, 2019
„Au pair hjá mér. Borga í kampavíni og pizzu,“ tístir hún og Arnór Bogason semur ljóð í tilefni atvinnuauglýsingarinnar.
„Berglind kemur víða við
veldur breyttum högum
Vikan er ekki send út
snemma á mánudögum.“
Berglind kemur víða við
veldur breyttum högum
Vikan er ekki send út
snemma á mánudögum— Arnór Bogason (@arnorb) April 10, 2019