Flestir kannast við að hafa skáp eða skúffu á heimilum sínum þar sem öll lyf heimilisins eru geymd. Oft safnast þar upp lyf sem annað hvort eru útrunninn eða skammtar voru ekki kláraðir. Þegar kemur loks að því að taka eigi til þá eiga þessi lyf oft til að enda í ruslatunnum eða jafnvel í klósettum landsmanna. Lyfjastofnun, í samstarfi við Veitur og Reykjavíkurborg, hafa nú tekið sig saman og farið í átak þar sem landsmenn eru hvattir að skila inn lyfjum á réttan stað. Lyf geta valdið gífurlegum skaðlegum áhrifum á umhverfis komist þau í sjóinn eða jarðveginn. Því er mikilvægt að lyf fari í réttan farveg.
Fólk getur nálgast lyfjapokann í öllum apótekum landsins og getur það skilað honum einnig í öll apótek landsins sér að kostnaðarlausu.