fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Shoreditch í London er perla sem allir verða að heimsækja

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 23. september 2018 11:00

Fólk á rölti um Shoreditch-hverfi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir Íslendingar sem heimsækja London reglulega eiga það til að dveljast um of í sömu hverfunum, til dæmis Soho, Covent Garden, Kensington, Mayfair, Marylebone og Notting Hill. London hefur upp á margt annað að bjóða og því getur verið skemmtilegt að brjótast úr viðjum vanans og heimsækja önnur hverfi stórborgarinnar. Eitt slíkt hverfi er Shoreditch-hverfið í London sem er falin perla í stórborginni.

Á 8. og 9. áratug síðustu aldar var Shoreditch í niðurníðslu og þar var fátt sem gladdi augað. Fasteignaverð var lægra þar en annars staðar og það er gömul saga og ný að slík hverfi fara smátt og smátt að vekja athygli fjöldans. Ungt fólk og listamenn fóru gera sig þar heimkomna og skyndilega var Shoreditch orðið paradís „hipsteranna“.

Shoreditch liggur alveg við fjármálahverfi London, „City“. Andstæðurnar verða vart meiri því flestar byggingarnar í Shoreditch eru lágreistar og skreyttar götulistaverkum sem síðan renna saman við ógnarhá glerhýsi mammons. Það gerir að verkum að það mallar í suðupotti mannlífs í hverfinu.

DV lagði línurnar fyrir stórkostlega helgarferð til Shoreditch í London.

Gisting:

Í Shoreditch er afar mikilvægt að vera töff. Því kemur það sér vel að það er ekki hægt að gista á meira töff stað en CitizenM-hótelinu í hverfinu. Um er að ræða litla hótelkeðju sem er aðeins í ellefu borgum í veröldinni en auðvitað bara mjög töff borgum, til dæmis á Times Square í New York, í Taipei, Amsterdam og Kúala Lúmpúr, svo einhverjar borgir séu nefndar.

Staðsetning hótelsins er frábær en það eru opnu rýmin, móttakan og barinn, sem eru framúrskarandi. Þar er mikið líf og þægilegt að setjast niður með drykk og njóta lífsins. Sjálf herbergin eru frekar lítil en afar vel hönnuð. Þar er stórt og þægilegt rúm krúnudjásnið en einnig sú staðreynd að öllu rafmagni, hljóði og birtu er stjórnað úr handhægri spjaldtölvu.

Rúsínan í pylsuendanum er að tveggja manna herbergi kostar um 20 þúsund krónur á hverja nótt sem verður að teljast hagstætt verð á góðu hóteli í London.

Herbergi á CitizenM-hótelinu
Bar og setustofa á CitizenM

Að sjá, drekka og borða:

Old Spitalfields Market: Stórkostlegur markaður sem hefur verið starfræktur í um 350 ár. Markaðurinn var endurhannaður í október 2017 og er óhætt að fullyrða að það hafi heppnast vel. Litlir áhugaverðir verslunarbásar í rólegu umhverfi og allt um kring eru frábærir matarvagnar sem eru hver öðrum betri. Þegar maður gengur um markaðinn er ekki hægt annað en að skammast sín fyrir Kolaportið íslenska. Óhætt er að  mæla með „pulled pork“-samlokunni frá Dirty Bagels.

Boxpark: Við Bethnal Green Road stendur Boxpark-verslunarmiðstöðin, sú fyrsta sinnar tegundar. Hún var opnuð árið 2011 og síðan endurhönnuð árið 2017. Um er að ræða verslunarmiðstöð sem er búin til úr um 60 gámum sem eru haganlega tengdir saman. Þar eru um 27 skemmtilegar búðir og 19 veitingastaðir og barir, hver öðrum skemmtilegri. Halloumi-franskarnar á Poptata eru syndsamlega góðar.

Boxpark

 

Dinerama: Við Great Eastern Street, skammt frá Boxpark, er hin stórskemmtilega matarhöll Dinerama sem nýtur mikilla vinsælda. Þar eru tæplega fimmtíu veitingabásar, frekar en staðir, sem bjóða upp á mat og drykk frá öllum heimshornum. Tónlistin er nokkuð hávær þarna og staðurinn er smekkfullur allar helgar. Nauðsynlegt er að bragða á bao bun-samlokunum frá Yum Bun.

Dinerama

 

Dishoom

Einn besti veitingastaðurinn í Shoreditch er íransk/indverski veitingastaðurinn Dishoom, sem er við Boundary Street. Ekki er hægt að panta borð en gestir geta vænst þess að bíða í 1–1½ klukkustund eftir borði. Það er þó fullkomlega þess virði. Ef lambaheili (behja) er á matseðlinum þá má enginn láta það ljúfmeti framhjá sér fara.

Dishoom

Rölt niður Brick Lane

 

Það er afar skemmtilegt að ganga niður Brick Lane og skoða það sem fyrir augu ber, sérstaklega úrvalið af indverskum og bangladesskum matsölustöðum. Þar eru margir gimsteinarnir en einnig margir forarpyttirnir sem ber að varast. Einn af þeim allra bestu og vinsælustu er veitingastaðurinn Aladin sem fékk heiðursútnefningu „besta karríhúsið á Brick Lane“ og flaggar því við hvert tækifæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar