Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens fagnar því í dag að 22 ár eru liðin síðan hann varð edrú. Bubbi segir frá þessu á Twitter-síðu sinni.
„Ég vaknaði um nótt og sagði upphátt: „Ég er hættur.“ Síðan eru liðin 22 ár,“ segir Bubbi sem er einn ástsælasti tónlistarmaður íslensku þjóðarinnar.
Bubbi, sem er 62 ára, hefur margsinnið tjáð sig á opinskáan hátt um neysluna.
Í viðtali í Fréttablaðinu árið 2013 sagði hann að sú ákvörðun að verða edrú hafi bjargað lífi hans.
„Ég hélt um tíma lista yfir þá vini og kunningja sem höfðu verið mér samferða í neyslunni. Svo hætti ég því. Nöfnunum á listanum tók að fækka ansi hratt. Þegar menn deyja úr neyslu heitir það ýmsum nöfnum – stundum sjálfsvíg, stundum hjartaáfall. Ég er löngu búinn að missa töluna á þeim sem ég hef horft eftir yfir móðuna miklu vegna drykkju.“